Við Engjaveg í Mosfellsbæ stendur einstaklega fallegt og vel staðsett 183,9 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með sérstæðum bílskúr. Húsið, sem reist var árið 2016, er finnskt, einangrað bjálkahús og stendur á 1.534 fermetra eignarlóð sem jafnframt er jaðarlóð til austurs.
Eignin hefur vakið athygli fyrir vandaðan frágang og góða nýtingu rýmis. Rúmgóður, flísalagður bílskúr með rislofti fylgir húsinu, búinn heitu og köldu vatni og hurð með rafmagnsopnun.
Lóðin er stór og vel skipulögð með veröndum í suður-, austur- og norðausturátt. Á henni má finna geymslukúr, leiktæki og heitan pott með snjallstýringu í gegnum app. Þá fylgir fjarstýrður sláttuþjarkur og eru öll útiljós með sólarsellum. Húsið er búið varmaskipti fyrir neysluvatn þar sem kalt vatn er hitað upp í heitt neysluvatn, sem stuðlar að aukinni orkunýtingu.
Staðsetningin þykir einstök á friðsælum stað þar sem sveitasæla og borgarlíf mætast. Leikskólinn Leikskólinn Reykjakot er í göngufæri og þaðan ganga bæði skólabíll og strætó í grunnskóla bæjarins. Öll helsta þjónusta höfuðborgarsvæðisins er innan seilingar.
Kaupverð eignarinnar er 165 milljónir króna.


Komment