1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

3
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

4
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

5
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

6
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

7
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

8
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

9
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

10
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Til baka

Fyrrum útrásarvíkingur reisir lúxushótel og þyrlupall á Snæfellsnesi

Talið er að um 300 störf skapist með uppbyggingunni

Ólafur Ólafsson
Ólafur ÓlafssonÓlafur hyggst byggja lúxushótel á Snæfellsnesi
Mynd: Skjáskot

Félagið Laxárbakki Resort ehf. hyggst ráðast í umfangsmikla ferðaþjónustuuppbyggingu í Eyja- og Miklaholtshreppur á Snæfellsnesi. Þetta kemur fram í frétt Bændablaðsins.

Samkvæmt fyrirtækjaskrá eru hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir stærstu eigendur félagsins.

Í matsáætlun sem ráðgjafarfyrirtækið Verkís vann fyrir verkefnið kemur fram að fyrirhugað sé að reisa fimm stjörnu hótel í hæsta gæðaflokki með 45 herbergjum. Meðal mannvirkja sem áformað er að byggja eru heilsumiðstöð, veitingastaður, þjónustu- og starfsmannahús auk allt að 19 sjálfstæðra frístundahúsa. Þá er einnig gert ráð fyrir þyrlupalli, þar sem búast má við allt að fimm lendingum á dag. Aðgangur að svæðinu verður fyrst og fremst ætlaður gestum ferðaþjónustunnar.

Jörðin Laxárbakki spannar um 645 hektara landsvæði. Hún afmarkast af Laxá í norðri og Stakkhamarsósi í vestri, sem telst hluti af Löngufjörur. Að austan liggur jörðin að Miklaholti II og Blöndulæk í suðri. Laxárbakki var áður nýttur til landbúnaðar en hefur legið í eyði frá árinu 1947. Áætlað er að framkvæmdir hefjist árið 2027 og fari fram í nokkrum áföngum, þar sem stærsti áfanginn eigi að ljúka árið 2030.

Í matsáætluninni kemur jafnframt fram að framkvæmdasvæðið sé að hluta innan svokallaðs C-hluta náttúruminjaskrár, þar sem finna megi náttúrusvæði sem talin eru verðug friðunar, þar á meðal Löngufjörur. Stór hluti svæðisins fellur einnig innan mikilvægs fuglasvæðis samkvæmt gögnum Náttúrufræðistofnun Íslands, auk þess sem þar er arnaróðal. Framkvæmdaraðili segist þó ætla að leggja áherslu á að mannvirki, vegir og bílastæði samræmist landslagi og náttúru eins vel og kostur er, og að rask á framkvæmdatíma verði haldið í lágmarki. Gert er ráð fyrir að starfsemin geti skapað allt að 300 varanleg störf, en starfsfólk mun að stórum hluta dvelja tímabundið í sérstökum starfsmannahúsum.

Athugasemdafrestur vegna verkefnisins í skipulagsgátt rann út 14. janúar. Í umsögn frá Ungir umhverfissinnar er varað við því að uppbyggingin muni ganga á verðmæt vistkerfi og lífríki. Þar er hvatt til þess að sambærileg ferðaþjónustuverkefni verði fremur staðsett á svæðum þar sem innviðir eru þegar til staðar, í stað þess að raska ósnortnum og alþjóðlega mikilvægum náttúrusvæðum.

Ólafur Ólafsson á jafnframt fleiri jarðir á sunnanverðu Snæfellsnesi, en samkvæmt frétt RÚV frá árinu 2019 á hann einnig Borg, Eiðhús og Miðhraun í grennd við Laxárbakka. Ólafur og Ingibjörg eiga fasteignafélagið Festi, þar sem Ólafur gegnir formennsku í stjórn, auk þess sem þau eiga meirihluta í Samskip og Landflutningum.

Ólafur er einn fjögurra svokallaðra útrásarvíkinga sem dæmdir voru til fangelsisvistar á Kvíabryggju þann 12. febrúar 2012 fyrir efnahagsbrot.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“
Heimur

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

Limminnsti maður heims biðst afsökunar
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum
Myndband
Heimur

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Peningar

Fyrrum unglingalandsliðsmaður fær nýtt og spennandi starf
Peningar

Fyrrum unglingalandsliðsmaður fær nýtt og spennandi starf

Var eins og köttur í markinu
Landsbankinn stofnar óljósa „menningardeild“
Peningar

Landsbankinn stofnar óljósa „menningardeild“

Víkingur Heiðar stofnar fyrirtæki með maka sínum
Peningar

Víkingur Heiðar stofnar fyrirtæki með maka sínum

Brim heldur áfram að græða milljarða
Peningar

Brim heldur áfram að græða milljarða

Hraðfrétta-Benni fer í fyrirtækjarekstur
Peningar

Hraðfrétta-Benni fer í fyrirtækjarekstur

Gugga í Gúmmíbát stofnar fyrirtæki
Peningar

Gugga í Gúmmíbát stofnar fyrirtæki

Loka auglýsingu