1
Menning

Þögn á Akranesi

2
Innlent

Einstæð þriggja barna móðir áreitt

3
Skoðun

Eiginkona mín má ekki koma til Íslands

4
Heimur

Sigurbjörg biður um hjálp fyrir sveltandi fjölskyldu

5
Heimur

Flugvél á leið til Spánar nauðlenti vegna flugdólga

6
Innlent

Kannast ekki við uppákomu í Skeifunni

7
Innlent

Sonur Sævars Þórs eltur

8
Peningar

Fyrirtækjaráðgjafinn sem flaug að sólinni

9
Innlent

Nemendur fundu lirfur í matnum í Kópavogsskóla

10
Innlent

Árbæingur hótaði lögreglumanni nauðgun

Til baka

Gera grín að auglýsingu Sjálfstæðismanna um útlendingamál

Sjálfstæðismenn ræddu útlendingamál í Valhöll

Diljá Mist
Diljá Mist Einarsdóttir alþingismaðurKunni ekki vel við færslu Egils Helgasonar
Mynd: Víkingur

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason vakti athygli á föstudaginn á auglýsingu um fund sem Félag Sjálfstæðismanna um fullveldismál sem var birt í Morgunblaðinu. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur ýmsar vistarverur,“ skrifaði fjölmiðlamaðurinn um auglýsinguna. „Mér finnst stóra spurningin í þessu samhengi vera - hver erum “við”?“ bætti hann svo við í athugasemd.

Á fundinum, sem haldinn var um helgina, töluðu Diljá Mist Einarsdóttir alþingismaður, Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi aðstoðarríkissaksóknari og Ólafur Ísleifsson, fyrrverandi alþingismaður, á honum ef marka má auglýsinguna.

Auglýsing Sjálfstæðisflokkur
Auglýsingin umrædda

Það sem vakti hins vegar kátínu margra í athugasemdakerfi Egils að í auglýsingunni er að finna augljósar villur en sem dæmi vantar N fyrir aftan orðið haldin, september er skrifaður með stóru S og orðið klukkan er skrifuð með þremur K. Þá eru fleiri villur í textanum sem eru þó ekki jafn augljósar.

Fannst nokkrum þetta nokkuð kaldhæðnislegt í ljósi efni fundarins var útlendingamál. Diljá Mist var hins vegar ekki sátt við færslu Egils og tjáði sig í athugasemdakerfinu.

„Ég velti því nú fyrir mér hvort ég ætti að nenna að kommenta, eftir að hafa hlustað á eiganda síðunnar Egill Helgason segja frá því á dögunum að hann líti á hana sem vettvang til að deila eigin skoðunum en gefi umræðunum sem komi í kjölfarið lítinn gaum. Ég var annars beðin um að koma á fund þessa félags til að ræða þingmálin mín sem tengjast útlendingamálum. Hafði ekki séð fyrirsögnina fyrr en í auglýsingu og hún virðist ná tilætluðum árangri að fanga athygli. Spurningin býður upp á ýmiss konar skemmtilega (jafnvel heimspekilega) umræðu sem hefur m.a. vaknað hér á þræðinum um hverjir séu ,,við". Verð þó að segja að það er iðulega hægt að treysta á að á þráðum Egils sé að finna a.m.k. annan enda þessarar umtöluðu skautunar. Okkar allra umburðarlyndasta, víðsýnasta og kærleiksríkasta fólk að dreifa stimplum og upphrópunum og gera fólki upp skoðanir. Hvað ætli orðin nasisti og fasisti komi oft fyrir í umræðum á síðu Egils? Þetta fólk ætti endilega að mæta á sem flesta fundi til að hlusta og taka þátt í yfirveguðum umræðum augnliti til augnlits. Góðar stundir.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Samkynhneigð uns „sakleysi“ sannast
Heimur

Samkynhneigð uns „sakleysi“ sannast

Óvenjuleg skotmörk í baráttu rússneskra stjórnvalda gegn LGBTQ+
Fyrirtækjaráðgjafinn sem flaug að sólinni
Nærmynd
Peningar

Fyrirtækjaráðgjafinn sem flaug að sólinni

Bragi Páll mærir hugrekki Möggu Stínu
Innlent

Bragi Páll mærir hugrekki Möggu Stínu

Eiginkona mín má ekki koma til Íslands
Skoðun

Jóhann Dagur Þorleifsson

Eiginkona mín má ekki koma til Íslands

Flugvél á leið til Spánar nauðlenti vegna flugdólga
Myndband
Heimur

Flugvél á leið til Spánar nauðlenti vegna flugdólga

Innkalla Kraft og Fadogia agrestis
Innlent

Innkalla Kraft og Fadogia agrestis

Faðir neyddi barnaníðing til að grafa sína eigin gröf
Heimur

Faðir neyddi barnaníðing til að grafa sína eigin gröf

Nemendur fundu lirfur í matnum í Kópavogsskóla
Innlent

Nemendur fundu lirfur í matnum í Kópavogsskóla

Höfðingjasetur til sölu á höfuðborgarsvæðinu
Myndir
Fólk

Höfðingjasetur til sölu á höfuðborgarsvæðinu

Ísraelsk herskip ögruðu Sumud-flotanum í nótt
Heimur

Ísraelsk herskip ögruðu Sumud-flotanum í nótt

Andri Snær rífur blaðamann Morgunblaðsins í sig
Innlent

Andri Snær rífur blaðamann Morgunblaðsins í sig

Innlent

Bragi Páll mærir hugrekki Möggu Stínu
Innlent

Bragi Páll mærir hugrekki Möggu Stínu

„Fólk sem segir eitthvað annað er annað hvort að ljúga að þér eða bergmála lygar“
Bíll endaði á húsi í Kópavogi
Innlent

Bíll endaði á húsi í Kópavogi

Innkalla Kraft og Fadogia agrestis
Innlent

Innkalla Kraft og Fadogia agrestis

Nemendur fundu lirfur í matnum í Kópavogsskóla
Innlent

Nemendur fundu lirfur í matnum í Kópavogsskóla

Andri Snær rífur blaðamann Morgunblaðsins í sig
Innlent

Andri Snær rífur blaðamann Morgunblaðsins í sig

„Nei, Þorgerður Katrín“
Innlent

„Nei, Þorgerður Katrín“

Loka auglýsingu