
Strendur Kanaríeyja urðu nýverið vettvangur hættulegs atviks þegar hópur ferðamanna hunsaði opinberar veður- og öryggisviðvaranir við sjóinn. Atvikið átti sér stað við vitann Faro de Sardina del Norte í bænum Gáldar á eyjunni Gran Canaria.
Samkvæmt upplýsingum frá samtökunum Canarias 1500 Km de Costa hafði hópurinn farið yfir öryggisgirðingu sem sett hefur verið upp til að halda fólki frá hættulegum klettum á svæðinu. Þar er fallhæðin yfir 20 metrar og svæðið þekkt fyrir varasamar aðstæður, sérstaklega þegar sjógangur er mikill.
Minnir atvikið ansi mikið á hegðun ferðamanna í kringum Reynisfjöru á Íslandi.
Myndskeið sem ljósmyndarinn Paco Ortiz Santana tók sýnir hópinn standa á klettasyllu þegar kröftug alda skellur á klettaveggnum. Vatn flæddi yfir sylluna og olli skelfingu meðal þeirra sem þar voru staddir. Engin slys urðu á fólki að þessu sinni, en samtökin vara við því að atvikið hefði auðveldlega getað haft alvarlegar afleiðingar.
Í tilkynningu frá Canarias 1500 Km de Costa segir að slíkt gáleysi setji mannslíf í hættu og geti jafnframt skapað mikla áhættu fyrir björgunarsveitir og aðra neyðarþjónustu sem þyrfti að bregðast við við erfiðar og hættulegar aðstæður ef slys ætti sér stað.
Yfirvöld á svæðinu hafa ítrekað hvatt bæði íbúa og ferðamenn til að virða öryggismerkingar og viðvaranir við strendur eyjanna, enda geti sjórinn verið afar óútreiknanlegur og hættulegur.

Komment