1
Landið

Halldóra Dagný segir upp sem skólastjóri

2
Peningar

Hafdís Björg stofnar fyrirtæki

3
Sport

Landsliðskona Íslands ólétt

4
Fólk

Rándýr draumaeign í gamla Vesturbænum til sölu

5
Heimur

Kennari stunginn til bana af nemanda

6
Innlent

Einn alvarlega slasaður eftir umferðarslys

7
Heimur

BBC fangar magnað augnablik úr náttúrunni

8
Heimur

19 ákærðir fyrir mansal á ungbörnum

9
Innlent

Seldu fíkniefni á Barónsstíg

10
Innlent

Lögreglan í Litáen tjáir sig ekki um eftirlýstan mann á Íslandi

Til baka

Grikkir banna börnum að nota samfélagsmiðla

Barn snjallsíma farsíma síma sími börn stelpa stúlka
Barn í snjallsímaMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Shutterstock

Grikkland hyggst banna aðgang barna yngri en 15 ára að samfélagsmiðlum frá og með 1. janúar 2027, að því er forsætisráðherrann Kyriakos Mitsotakis tilkynnti í dag.

Í myndskeiði sem hann birti á samfélagsmiðlinum TikTok sagði Mitsotakis að um væri að ræða „erfiða en nauðsynlega aðgerð“. Markmiðið væri ekki að halda börnum frá tækni almennt, heldur að sporna gegn ofnotkun tiltekinna forrita sem geti haft neikvæð áhrif á þroska þeirra, frelsi og vellíðan.

„Ég veit að sum ykkar munu verða ósátt,“ sagði hann og bætti við að rannsóknir bentu til þess að langvarandi skjátími hefði skaðleg áhrif á heila barna.

Grikkland er meðal fyrstu ríkja í heiminum til að grípa til slíkra aðgerða. Mitsotakis kvaðst jafnframt hyggjast beita sér fyrir því að Evrópusambandið taki upp sambærilegar reglur á vettvangi sambandsins.

Þróunin í Grikkland er í takt við aukna umræðu á alþjóðavettvangi um áhrif samfélagsmiðla á börn og ungmenni. Ástralía varð í desember fyrsta ríkið til að skylda fyrirtæki á borð við TikTok, YouTube og Snapchat til að fjarlægja aðganga notenda yngri en 16 ára, ella sæta háum sektum.

Einnig hafa yfirvöld í Indónesíu hafið framkvæmd sambærilegs banns fyrir notendur yngri en 16 ára og þegar gripið til aðgerða gagnvart tæknifyrirtækjum eins og Google og Meta vegna meintrar vanefnda á lögunum.

Í Austurríki stendur til að leggja fram frumvarp um bann við notkun samfélagsmiðla fyrir börn allt að 14 ára aldri síðar á þessu ári. Þá hafa Spánn og Danmörk einnig lýst yfir áformum um að setja svokallaðan stafrænan lögræðisaldur fyrir notkun samfélagsmiðla.

Aðgerðir þessara ríkja endurspegla vaxandi áhyggjur stjórnvalda víða um heim af áhrifum stafrænnar tækni á yngstu kynslóðirnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Stuðningsfólk Miðflokksins mjög óvinsælt
Innlent

Stuðningsfólk Miðflokksins mjög óvinsælt

Er talsvert óvinsælla en múslimar, trans fólk og innflytjendur
Þingið kallar Bill Gates til vitnis í Epstein-málinu
Heimur

Þingið kallar Bill Gates til vitnis í Epstein-málinu

„Það er pólitískur ómöguleiki að koma Íslandi í ESB“
Innlent

„Það er pólitískur ómöguleiki að koma Íslandi í ESB“

Lík 17 ára pilts fannst eftir leit í tjörn
Heimur

Lík 17 ára pilts fannst eftir leit í tjörn

Maður braust inn í gerði Moo Deng
Heimur

Maður braust inn í gerði Moo Deng

Réttað yfir sænskum unglingum vegna morðtilraunar
Heimur

Réttað yfir sænskum unglingum vegna morðtilraunar

Algjörlega einstakt hús við sjávarsíðuna til sölu
Myndir
Fólk

Algjörlega einstakt hús við sjávarsíðuna til sölu

Bílstjórar ákváðu að aka í Breiðholti á máta sem lögreglu var ekki sama um
Innlent

Bílstjórar ákváðu að aka í Breiðholti á máta sem lögreglu var ekki sama um

Einn alvarlega slasaður eftir umferðarslys
Innlent

Einn alvarlega slasaður eftir umferðarslys

NASA birtir fyrstu mynd af bakhlið tunglsins
Heimur

NASA birtir fyrstu mynd af bakhlið tunglsins

Rappari handtekinn í tengslum við skotárás á Offset
Heimur

Rappari handtekinn í tengslum við skotárás á Offset

Seldu fíkniefni á Barónsstíg
Innlent

Seldu fíkniefni á Barónsstíg

Heimur

Þingið kallar Bill Gates til vitnis í Epstein-málinu
Heimur

Þingið kallar Bill Gates til vitnis í Epstein-málinu

Sagður hlakka til að svara fyrir tengsl sín við Epstein og Maxwell
NASA birtir fyrstu mynd af bakhlið tunglsins
Heimur

NASA birtir fyrstu mynd af bakhlið tunglsins

Lík 17 ára pilts fannst eftir leit í tjörn
Heimur

Lík 17 ára pilts fannst eftir leit í tjörn

Maður braust inn í gerði Moo Deng
Heimur

Maður braust inn í gerði Moo Deng

Réttað yfir sænskum unglingum vegna morðtilraunar
Heimur

Réttað yfir sænskum unglingum vegna morðtilraunar

Grikkir banna börnum að nota samfélagsmiðla
Heimur

Grikkir banna börnum að nota samfélagsmiðla

Loka auglýsingu