
Helgi Áss Grétarsson, skákmeistari og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á ekki upp á pallborðið í sínum nýja flokki, Miðflokknum. Helgi yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn eftir mikil átök við Hildi Björnsdóttur, leiðtoga borgarstjórnarflokksins.
Mikil reiði var meðal borgarfulltrúanna vegna þess að leiðtoginn er talinn hafa staðið fyrir upptökum á einkasamtölum við félaga sína. Rætt var um að kæra leiðtogann. Eftir að ljóst varð að Hildur hélt oddvitasætinu hvarf Helgi Áss á braut. Fullvíst var talið að hann hefði uppi í erminni loforð frá Birni Inga Hrafnssyni, aðstoðarmanni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, um að hann fengi eitt af þremur efstu sætum listans.
Nú er Ari Edwald lögfræðingur orðinn leiðtogi og búið er að raða í næstu tvö sæti. Hermt er að Helga hafi verið skákað og honum síðan fórnað til að halda opinni þeirri leið að Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur geti unnið saman í borgarstjórn eftir kosningar ...
Komment