1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

8
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

9
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

10
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Til baka

Jón Gnarr vill reisa klaustur í Viðey

Vill sjá blómstrandi samfélag í eynni á ný

Viðey
Úr ViðeyJón Gnarr er með hugmyndir um framtíð Viðeyjar
Mynd: Shutterstock

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, veltir fyrir sér framtíðarskipulagi Viðeyjar og hvort þar megi byggja upp fjölskylduvænt samfélag með skýra tengingu við sögu og náttúru eyjarinnar. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann birti nýverið.

Jón segir skipulagsmál vera meðal flóknustu viðfangsefna samfélagsins, þar sem saman fari búseta, samgöngur, menningarlegar áherslur, fagurfræði, andleg líðan og lýðheilsa. Hann bendir á að skipulagsmál séu bæði fagleg fræði og pólitískt sáttamál og vísar til eigin reynslu af vinnu við Aðalskipulag Reykjavíkur 2014.

Þingmaðurinn segir að nokkur atriði í skipulagsmálum borgarinnar hafi hann ekki sett sig nægilega vel inn í á sínum tíma, en greinir frá því að hann sé nú að vinna grein um þau mál sem birtist síðar á Eyjunni. Í millitíðinni vilji hann varpa fram hugmyndum sérstaklega varðandi Viðey.

Í færslunni rekur Jón langa og merka byggðasögu Viðeyjar sem nær aftur til landnáms. Þar hafi verið reist klaustur árið 1225 og kirkja, líklega stafkirkja að norskri fyrirmynd, sem stóðu fram að siðaskiptum. Í eyjunni hafi í gegnum aldir verið búseta, búskapur og atvinnustarfsemi.

Hann segir sig hafa sótt innblástur til eyjabyggða við strendur borga í Noregi og í Svíþjóð, þar sem samfélög byggja gjarnan á menningarsögu eða hugmyndafræði á borð við vistbyggðir. Slík svæði einkennist oft af takmarkaðri bílaumferð, fjölskylduvænu skipulagi og nálægð við náttúru, segir Jón.

Jón bendir jafnframt á að á Íslandi megi finna sambærilegar byggðir í Flatey og Hrísey og veltir því upp hvort svipuð nálgun gæti átt við í Viðey. Hann lýsir hugmynd um „þorp í borg, þar sem litlum og stórum og litríkum gamaldags timburhúsum, með stórum lóðum væri dritað nokkuð óskipulega niður.“ Jón spyr svo: „Gæti það ekki orðið svolítið skemmtileg viðbót við borgina?“

Að lokum nefnir hann þá hugmynd að jafnvel mætti endurreisa klaustrið og kirkjuna sem hluta af slíkri uppbyggingu.

„Það mætti jafnvel endurreisa klaustrið og kirkjuna?“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé
Menning

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

„Við erum sennilega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitthvað eftir ósagt.“
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Vísar á bug sölu á Landsvirkjun
Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Loka auglýsingu