
Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt Grzegorz Kozlowski í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á samstarfsmann sinn í matsal vinnubúða Borgarverks á Skálanesi við Gufufjörð 11. febrúar 2025. Fullnustu refsingarinnar er frestað í tvö ár.
Samkvæmt dómnum sló ákærði manninn, A, þrisvar sinnum í andlitið með hnefahöggum. Við það hlaut brotaþoli meðal annars bólgur á vörum og nefi, brot úr framtönn, blæðingu úr nefi, eymsli í kjálka og fleiri minniháttar áverka.
Kozlowski játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi og viðurkenndi bótaskyldu. Hann hafði hvorki áður gerst sekur um refsiverðan verknað né reynt að draga úr ábyrgð sinni. Í dómnum segir þó að ekki verði litið fram hjá því að um hafi verið að ræða þung og ítrekuð hnefahögg í andlit brotaþola, og að samskiptaerfiðleikar í aðdraganda árásarinnar réttlæti ekki háttsemina.
Refsingin var ákveðin í ljósi játningar, sakavottorðs og þess að ákærði lýsti eftirsjá, en jafnframt með hliðsjón af alvarleika árásarinnar.
Dómurinn hafnaði kröfu brotaþola um 1,5 milljón króna miskabætur, en ákærði var hins vegar dæmdur til að greiða honum 200 þúsund krónur í miskabætur með vöxtum. Bótakrafan var talin réttlætanleg að hluta þar sem brotið var saknæmt og ólögmætt og olli brotaþola líkamstjóni.
Kozlowski var jafnframt dæmdur til að greiða A 190 þúsund krónur í málskostnað, auk þess sem hann greiðir allan sakarkostnað málsins, samtals 296.521 krónu. Þar af nam þóknun skipaðs verjanda hans, Páls Kristjánssonar lögmanns, 234.360 krónum.
Dómurinn var kveðinn upp af Oddi Þorra Viðarssyni héraðsdómara.

Komment