1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

3
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

4
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

5
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

6
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

7
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

8
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

9
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

10
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Til baka

Hrafn hæðist að nýjasta útspili Miðflokksins

„Bara einhver random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum og er strax mættur í sígilda hlaðvarpashringrúnkshringinn að tala um að breikka götur, drepa borgarlínuna og töfra fram nýtt leikskólastarfsfólk.“

Hrafn Jónsson
Ari EdwaldHrafn dregur Ara og Miðflokkinn sundur og saman í háði
Mynd: Facebook

Hrafn Jónsson, starfsmaður á miðlunarsviði ASÍ og fyrrverandi blaðamaður, gerir kaldhæðna og harða atlögu að hugmyndum um að Ari Edwald verði nýtt andlit í borgarmálum. Í Facebook-færslu veltir Hrafn fyrir sér nýlegu útspili Miðflokksins og þeirri ímynd sem þar er dregin upp af Ara sem mögulegum leiðtoga í sveitarstjórnarmálum.

Hrafn lýsir í upphafi eigin dagdraumum um að hefja nýtt líf í nýju bæjarfélagi, án þess þó að verða strax miðpunktur athyglinnar.

„Stundum dagdreymir mig líka um að pakka öllu ofan í tösku, vippa fjölskyldunni í bílinn og hefja nýtt líf í nýju bæjarfélagi. Stinga niður djúpum rótum; ganga í kórinn, kannski vera í rótarýklúbb. Nikka nýja granna á morgungöngunni í algjörlega nýjum takti.“ Hann segir hins vegar að í sínum villtustu draumum verði hann ekki „bæjarstjóraefni daginn sem ég stíg inn í bæinn,“ en við færsluna birtir Hrafn skjáskot af frétt Vísis þar sem fram kemur að Ari hafi flutt til Reykjavíkur í dag en undanfarið hefur hann verið bæði skráður í Portúgal og í Garðabæ.

Í færslunni dregur Hrafn upp ýkta mynd af Ara Edwald sem nýjum leikanda á pólitíska sviðinu og gagnrýnir þá hugmynd að hægt sé að flytja rekstrarhugsun úr viðskiptalífinu beint yfir í borgarstjórn. „En ég er heldur ekki stórhuga viðskiptamaður sem er mættur til að láta verkin tala; sópa göturnar, mála yfir veggjakrotið, mæta sjálfur á malbikunarvélinni til að bæta nýjum akreinum við stofnæðar.“ Hann bætir við að Ari sé „alvöru bissnessmaður“ og jafnframt „heimsborgari. Með fætur í tveimur heimum; þeim garðbæska og hinum portúgalska,“ og stingur jafnframt upp á því, með kaldhæðni, að slíkt tengist „djúpum fjölmenningarlegum áhuga frekar en einhverju svokölluðu skattahagræði.“

Hrafn segir útspil Miðflokksins vekja kátínu fremur en sannfæringu. „Ég verð að viðurkenna að þetta útspil Miðflokksins er smá fyndið.“ Hann telur augljóst að hér sé um tilraun að ræða til að fylgja ákveðnu pólitísku mynstri. „Augljóslega er þetta einhverskonar tilraun til að fara í frum-trumpíska módelið (eða bara gamla Sjálfstæðismódelið) að grafa upp einhvern nokkurn veginn random mann úr viðskiptalífinu því að TIL AÐ REKA BORG ÞARF ALVÖRU REKSTRARMANN.“

Í framhaldinu líkir hann kynningunni á Ara Edwald við raunveruleikaþátt. „Meira að segja teaserinn sem Miðflokkurinn setti út í gær var eins og einhver bastarðiseruð sena úr The Apprentice.“ Hann segir þó að ákveðnir grundvallarþættir slíkrar sviðsetningar hafi vantað. „Það gleymdist alveg að búa til hæpið, búa til raunveruleikaþáttinn. Ekki einu sinni rætinn Twitter aðgangur að gagnrýna borgaryfirvöld.“

Hrafn lýsir einnig undrun sinni á því hversu lítið Ari Edwald hafi verið sýnilegur í samfélagsumræðu fram til þessa. „Það er enginn á Íslandi búinn að hugsa um Ara Edwald í áratug, og Ari er ekkert búinn að setja sjálfan sig inn í þjóðfélagsumræðuna heldur (nema gegn sínum vilja, ahem).“ Hann dregur upp mynd af manni sem birtist skyndilega á vettvangi. „Bara einhver random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum og er strax mættur í sígilda hlaðvarpashringrúnkshringinn að tala um að breikka götur, drepa borgarlínuna og töfra fram nýtt leikskólastarfsfólk.“

Að lokum spyr Hrafn hvort hugsunin hafi náð dýpra en daglegt pirringsefni. „Ætli hann hafi eina sekúndu pælt í borgarskipulagi að öðru leyti en að vera pirraður í umferðinni á leiðinni úr Garðabænum?“ Hann lýkur færslunni með því að segja: „Það kemur væntanlega í ljós.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“
Heimur

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

Limminnsti maður heims biðst afsökunar
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum
Myndband
Heimur

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Pólitík

Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði
Pólitík

Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði

„Almannafé á að verja með ábyrgð og gagnsæi.“
Hera Björk býður sig fram
Pólitík

Hera Björk býður sig fram

Diljá Mist segir heilbrigðisráðherra vera fordómafullan
Pólitík

Diljá Mist segir heilbrigðisráðherra vera fordómafullan

Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran
Pólitík

Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran

Rúnar Freyr fær sæti á lista Hildar
Pólitík

Rúnar Freyr fær sæti á lista Hildar

Loka auglýsingu