1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

9
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

10
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Til baka

Diljá Mist segir heilbrigðisráðherra vera fordómafullan

„Hvernig má þetta vera?“

Diljá Mist
Diljá Mist Einarsdóttir alþingismaðurEr á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Mynd: Víkingur

Á Alþingi í dag ræddi Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um svar sem hún fékk frá Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um efnaskiptaaðgerðir. Óhætt er að segja að Diljá sé ekki hrifin af svari Ölmu en í ræðu sinni á Alþingi sagði Diljá heilbrigðisráðherra vera fastan í fordómum og gamaldags kreddum.

„Virðulegi forseti. Nýlega barst mér svar við fyrirspurn minni til hæstv. heilbrigðisráðherra um efnaskiptaaðgerðir. Þar er að finna ýmsar áhugaverðar upplýsingar um fjölda aðgerða sem hafa verið framkvæmdar erlendis á sjúkratryggðum einstaklingum síðastliðin ár og hafa verið niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands, niðurgreiddar af íslenskum skattgreiðendum,“ sagði þingmaðurinn um málið.

„Niðurgreiðslan nemur hundruðum milljóna á ári og slagar í milljarð frá árinu 2022. Hundruð milljóna frá íslenskum skattgreiðendum til heilbrigðisþjónustu erlendis, bara vegna efnaskiptaaðgerða. Mér datt því í hug að spyrja hæst. ráðherra að því hvort sjúklingunum gæfist kostur á niðurgreiddri efnaskiptaaðgerð hjá innlendum aðilum með sömu skilyrðum og greinilega gilda fyrir aðgerðir erlendis. Svar hæstv. ráðherra er afdráttarlaust: Sjúkratryggðir sjúklingar geta ekki gengist undir efnaskiptaaðgerðir hjá sjálfstætt starfandi innlendum læknum. Hvernig má þetta vera? Hvernig réttlæta stjórnmálamenn þessa framkvæmd, þessa furðumeðferð á skattfé almennings bæði gagnvart sjúklingum, gagnvart læknum hér á landi og gagnvart þeim sem borga, skattgreiðendum? Ég hef sagt það áður og segi það aftur að íslenskir vinstri menn, eins og hæstv. heilbrigðisráðherra er, eru fastir í fordómum og gamaldags kreddum þegar kemur að heilbrigðismálum. Það er ótrúlegt að þeim skuli líða betur að millifæra fé íslenskra skattgreiðenda til heilbrigðisþjónustuaðila erlendis fremur en til innlendra aðila, til innlendra lækna,“ sagði Diljá.

„Ég mun fylgja þessu eftir hér á Alþingi, en hvet líka fjölmiðla, fjórða valdið, til að taka þetta til skoðunar. Það hlýtur fleirum en mér að blöskra þessi mismunum og þessi óskiljanlega meðferð á skattfé,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

„Staða hans er nú orðin afar alvarleg.“
Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Vísar á bug sölu á Landsvirkjun
Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Loka auglýsingu