1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

3
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

4
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

5
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

6
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

7
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

8
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

9
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

10
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Til baka

Inga sakar stjórnarandstæðinga um málþóf í umræðu um kjarabætur fyrir fátækasta fólkið

„Við erum búin að þurfa að horfa upp á það hverjir eru raunverulega þeir sem að vilja halda fátækasta fólkin okkar áfram í fátækt.“

Inga Sæland
Inga SælandInga hvetur almenning til þess að horfa á umræðuna á Alþingi í dag
Mynd: Víkingur

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sakar Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn um málþóf og að vilja halda fátækasta fólki landsins áfram í fátækt, í myndbandi sem hún birti í dag í tengslum við umræður á Alþingi um almannatryggingar og tengingu þeirra við launaþróun.

Í myndbandinu hvetur Inga fólk til að fylgjast með umræðum á Alþingi eftir lok óundirbúins fyrirspurnartíma.

Hún segir umræðurnar varpa skýru ljósi á það hverjir standi gegn breytingum sem miði að því að bæta kjör tekjulægstu hópa samfélagsins. „Við erum búin að þurfa að horfa upp á það hverjir eru raunverulega þeir sem að vilja halda fátækasta fólkin okkar áfram í fátækt. Það eru Miðflokkurinn og Sjálfstæðarslokkurinn sem eru búin að standa í málþófi hér og finna því öllu til foráttu.“

Inga segir að allt hafi verið gert til að koma í veg fyrir bætur til þeirra sem verst standa. „Það er allt fundið því til foráttu til þess að koma í veg fyrir það að tekjulægsta fólkið okkar fái einhverjar kjarabætur. Það er allt gert þess að koma í veg fyrir það að við getum stöðvað þá kjaragliðnun sem almannatryggingaþegar hafa mátt þola núna á seinni árum. Allt gert.“

Hún hvetur kjósendur til að velta því fyrir sér hverjum þeir treysta í þessum málum. „Þið sem eru tilbúin til þess að setja ykkar dýrmæta atkvæði á til dæmis Miðflokkinn, sem berst með kjafti og klóm gegn því að við getum raunvurulega leiðrétt kjaragliðnun almannatryggingaþega. Að við getum raunverulega lyft upp fátækasta fólkinu. Sjálfstæðislokkurinn algjörlega á sama vagni. Þetta er óþolandi með öllu.“

Að hennar sögn er algerlega óraunhæft að ætla að árangur náist ef þessir flokkar komist til valda. „Það er óþolandi með öllu ef þið virkilega trúið því að þið fáið að halda nokkru af þeim árangri sem að við höfum verið að berjast fyrir ef að þessir aðilar myndu koma að stjórninni.“

Inga segir jafnframt rangfærslur vera settar fram í umræðunni um aðgerðir stjórnvalda og hvetur fólk til að fylgjast með Alþingissjónvarpinu.

„Hlustið á það hvernig það er reynt að gefa það í skyn að með því að við séum að koma í veg fyrir áframhaldandi kjaragliðnun og aðstoða tekjulægsta fólkið okkar, þá muni það setja þjóðarskútuna á hausinn.“

Hún vísar einnig til ummæla innan Sjálfstæðisflokksins. „Þetta er eins og Guðrún Hafsteinsdóttir sagði, „Af öllum vondum þingmálum Flokks fólksins og þessara stjórnar þá er þetta það allra versta“. Það sennlega vegna þess að þetta er það þingmál sem mun hugsanlega koma og tryggja mestu kjarabót fyrir almannatryggingaþegna.“

Þá hvetur hún almenning eindregið til að fylgjast með umræðunum í beinni útsendingu

„Sjáið það í beinni útsendingu hvernig er verið að koma fram og hvernig alþingismenn eru að tala um fátækasta fólkið í landinu. Þetta er algjörlega óþolandi að þurfa að sitja undir því ítrekað. Ítrekað. Að þurfa að verja það. Verja það með kjafti og klóm að sé haldið áfram að nýðast svona á fátækasta fólkinu.“

Hún bætir við að sambærilegar deilur hafi áður komið upp, meðal annars þegar rætt var um persónuafslátt. „Það var líka barist gegn því þegar við vorum að reyna og gerðum það raunverulega að koma í veg fyrir það að persónuafsláttur yrði tekinn af fólkinu okkar sem býr hér erlendis. Meiri segja fólkið okkar sem býr erlendis, það var fljótt að gleyma því að þetta gaf þeim yfir 600.000 krónur á ári af því þau vildu fá þessar 70.000 krónur í jólabónus.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“
Heimur

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

Limminnsti maður heims biðst afsökunar
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum
Myndband
Heimur

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Pólitík

Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði
Pólitík

Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði

„Almannafé á að verja með ábyrgð og gagnsæi.“
Hera Björk býður sig fram
Pólitík

Hera Björk býður sig fram

Diljá Mist segir heilbrigðisráðherra vera fordómafullan
Pólitík

Diljá Mist segir heilbrigðisráðherra vera fordómafullan

Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran
Pólitík

Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran

Rúnar Freyr fær sæti á lista Hildar
Pólitík

Rúnar Freyr fær sæti á lista Hildar

Loka auglýsingu