
Grasrótarverkefni sem hófst í Noregi í janúar síðastliðnum hefur nú náð til Íslands undir heitinu Selbuvettlingar fyrir Frið. Verkefnið felst í því að prjóna hefðbundna norska vettlinga í fánalitum Palestínu og láta andvirðið renna til mannúðarsamtaka sem starfa á Gaza.
„Í janúar 2024 sat norsk kona heima hjá sér og reif í hárið á sér, eins og maður segir, af angist yfir því hvernig er farið með Palestínsku þjóðina,“ segir Sigrún Haraldsdóttir, sem stendur að verkefninu hér á landi, í samtali við Mannlíf. „Hana langaði að gera eitthvað til að hjálpa til og ákvað að prjóna svokallaða Selbuvettlinga (Íslendingar þekkja þá sem Betlehemsstjörnuna í prjónamunstri eða bara norskt munstur) í fánalitum Palestínu.“
Konan setti mynd af vettlingunum á netið og bauð þá til sölu. „Þannig fór boltinn að rúlla hjá þeim hér í Noregi. Grasrótarhreyfingin Selbuvotter for Fred varð til og alltaf bættust við pantanir og fleiri prjónarar. Nú hafa þau safnað yfir 2 milljónum norskra króna sem fara sem beinir styrkir til nokkurra hjálparsamtaka sem starfa á Gaza, þar á meðal Lækna án landamæra,“ segir Sigrún.
Hún vildi flytja hugmyndina til Íslands og styrkja Vonarbrú, sem styður barnafjölskyldur á Gaza. „Mig langaði mikið að koma þessu til Íslands til að afla styrkja fyrir Vonarbrú. Ég hafði samband við konuna sem startaði hreyfingunni hér í Noregi og spurði hana hvort við mættum nota prjónauppskriftirnar þeirra til að koma Selbuvettlingum fyrir Frið af stað á Íslandi. Það var aufúsumál,“ segir hún.
Í kjölfarið hófu Sigrún og Kristín Sæmundsdóttir, eigandi netverslunarinnar Svo Margt Fallegt, verkefnið á Íslandi um mánaðamótin október og nóvember.
„Konseptið gengur út á það þú pantar vettlinga á Instagramsíðu eða Facebooksíðu Selbuvettlingar fyrir Frið… tiltekur stærð, litasamsetningu og gerð munsturs, greiðir styrk beint til Vonarbrúar og sendir mér kvittun fyrir banka-millifærslu eða aur-færslu,“ útskýrir Sigrún. „Þegar það er komið þá finn ég prjónara til að prjóna vettlingana þína, við erum nú þegar komnar með um 20 prjónara, allt konur, sem bíða eftir verkefnum.“
Allt vinnuframlag í verkefninu er sjálfboðaliðastarf. „Konurnar og við Kristín gerum þetta allt í sjálfboðavinnu, kaupandi greiðir styrkinn beint til Vonarbrúar og garn og hugsanlegan sendingarkostnað til prjónarans,“ segir Sigrún.
Viðtökurnar hafa farið fram úr væntingum
„Viðtökurnar hafa verið frábærar, á þessum 11 dögum hafa safnast 155.500 krónur til Vonarbrúar og sífellt fleiri prjónakonur bætast í hópinn,“ segir hún að lokum.
👉 Panta má vettlinga eða skrá sig sem prjónara á linktr.ee/selbuvettlingar_fyrir_frid.

Komment