
Mai Wongphoothon hefur verið dæmd fyrir líkamsárás á sportbarnum Ölver í Laugardalnum en málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hún var ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 3. febrúar 2024, á Sportbarnum Ölver að Álfheimum 74 í Reykjavík, kastað glerflösku í höfuð á manni með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut yfirborðsáverka á höfði og tognun og ofreynslu á hálshrygg.
Wongphoothon játaði brot sitt en hún hefur þrívegis gengist undir sektargreiðslur á grundvelli lögreglustjórasátta á árunum 2019, 2021 og 2023. Þá var hún dæmd í júní 2023 í 45 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt fyrir umferðarlagabrot.
Hún var dæmd í fangelsi í fjóra mánuði en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þarf hún einnig að greiða fórnarlambi sínu 400 þúsund krónur.
Komment