
Kristinn Hrafnsson lætur Vísi hafa það óþvegið í nýrri Facebook-færslu.
Ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson er allt annað en sáttur við fréttaflutning Vísis af þjóðarmorði Ísraela á Palestínumönnum. Í færslu sem hann skrifaði í dag furðar Kristinn sig á því að ekki sé kveðið fastar að orði í fyrirsögnum frétta um nýjustu fjöldamorð Ísraelshers á Gaza:
„Þjóðarmorðið á Gaza komið á fullt að nýju og slátrunin er gengdarlaus. Helmingur hinna myrtu eru börn. Það er heldur betur áferðamunur á íslenskum fréttaflutningi. Hvernig getur hópmorð, fjöldamorð, þjóðarmorð og stórfelld miskunarlaus barnaslátrun EKKI ratað í fyrirsögn?“
Kristinn beinir því næst orðum sínum beint að Vísi og fréttastjóra miðilsins, Kolbeins Tuma Daðasonar, sem nýverið tók þá ákvörðun að taka aðsenda grein úr birtingu en þar var fullyrt að greiðslukortafyrirtækið Rapyd tæki beinan þátt í hernaði Ísraelshers og vitnar í orð Kolbeins Tuma.
„Á hvaða vegferð er visir sem tók nýverið aðsenda grein úr birtingu vegna þess að þar var fullyrðing ,,sem við töldum ekki uppfylla skilyrði okkar um sannleiksgildi staðhæfinga”. Höfundur greinarinnar segir mér að þar sé átt við fullyrðingu um að íslensk/ísraelska greiðslukortafyrirtækið Rapyd taki þátt í hernaðinum á Gaza. Það er undarleg ástæða því ársgömul aðsend grein með sömu staðhæfingu er enn á vef vísis.“
Að loku, hvetur ritstjórinn fólk til þess að sniðganga allt sem tengist þessum „viðbjóði“.
„Sniðgangið allt sem hefur beina eða óbeina tengingu við þennan viðbjóð.“
Komment