
Lík hefur fundist í leit að 17 ára pilti tilkynnt hafði verið um hvarf hans eftir að hann hafði farið út í tjörn í Lake District í Norðvestur Englandi og sést í vandræðum í vatninu.
Lögreglan í Cumbria fékk tilkynningu skömmu eftir klukkan 12:30 í gær frá vegfaranda um einstakling í hættu í High Dam-tjörn, nærri Windermere-vatni. Almenningur var beðinn um að halda sig frá svæðinu á meðan umfangsmikil björgunaraðgerð stóð yfir, með þátttöku lögreglu, slökkviliðs, sjúkraflutninga, strandgæslu og fjallabjörgunarsveita.
Lögreglan staðfesti síðar um kvöldið að lík hefði fundist og að andlátið væri ekki talið grunsamlegt.
„Hugur og samúð alls björgunarteymisins er hjá fjölskyldu og vinum piltsins, sem fá nú stuðning frá rannsakendum, sagði yfirlögregluþjónninn Patrick O’Hara. „Ég vil einnig þakka bændum á svæðinu sem aðstoðuðu við að flytja viðbragðsaðila og búnað utan vega að leitarsvæðinu.“
High Dam er manngerð tjörn sem er vinsæl meðal göngufólks og ferðamanna í Lake District.
Í fyrri tilkynningu sagði lögregla: „Cumbria Constabulary fékk símtal klukkan 12:32 frá vegfaranda sem tilkynnti um einstakling í vanda í vatninu við High Dam-tjörnina.
„Í kjölfarið var sett af stað samhæfð björgunaraðgerð þar sem aðilar frá Cumbria Constabulary, Cumbria Fire and Rescue Service, North West Ambulance Service, HM Coastguard og staðbundnum björgunarsveitum í fjöllum tóku þátt.“

Komment