
Búast má við mikilli umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu á Þorláksmessu og aðfangadag, en kirkjugarðarnir eru jafnframt opnir og aðgengilegir allan sólarhringinn yfir hátíðirnar.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu greinir hún frá því að hún muni mun fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð á aðfangadag og greiða fyrir umferð eins og hægt er.
„Minnum líka fólk á að klæða sig vel þegar farið er að leiðum ástvina í þeirri vinda og vætutíð sem er í umdæminu þessa dagana. Og að ökumenn haldi sig á malbikuðum götum og leggi í bílastæðin, en aki ekki inn á grafarsvæðin vegna hættu á skemmdum. Eftir helgina mátti sjá skemmdir í kirkjugörðum vegna þessa og því mikilvægt að hafa það hugfast,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Vakin er sérstök athygli á því að Fossvogskirkjugarður er lokaður allri bílaumferð á aðfangadag frá kl. 11-14 vegna mikils fjölda gangandi vegfarenda og slysahættu. Ökumönnum er bent á bílastæði við Fossvogskirkju, Klettaskóla, Suðurhlíð og Vesturhlíð.
„Aðkoma að Gufuneskirkjugarði verður eingöngu frá Hallsvegi. Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma stýrir umferðinni inni í kirkjugarðinum og verður um einskonar hringakstur að ræða. Farið er út úr Gufuneskirkjugarði norðanmegin og inn á Borgaveg. Ökumenn eru beðnir um að aka Borgaveg í vestur og þaðan um Strandveg. Með þessu móti minnkar álagið á Víkurveg og Hallsveg og greiðir fyrir umferð þeirra sem eru að koma í kirkjugarðinn.“
Sem fyrr hvetur lögreglan ökumenn til að aka varlega og sýna tillitssemi í umferðinni.

Komment