Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var greint frá því að óskað hafi verið aðstoðar á bráðamóttöku Landspítalans vegna aðila þar sem neitaði að fara. Sá krafði lögreglu um að aka honum í annað sveitarfélag en þeirri kröfu var hafnað. Hann æsti sig þá við lögreglu og gerði sig líklegan til þess að kasta höggi. Hann var færður í lögreglutök og fluttur á lögreglustöð þar sem honum var gefið tækifæri á að bæta ráð sitt ellegar færi hann í klefa. Það entist stutt en óskað var eftir aðstoð í félagslegu búsetuúrræði í borginni vegna háttalags hans í garð annarra og var vistaður í klefa.
Öryggisverðir voru aðstoðaðir við að vísa manni á brott út úr samkomuhúsi.
Vegfarandi í minniháttar umferðarslysi reyndist vera með nokkuð magn fíkniefna meðferðis og grunaði lögreglu sölu og dreifingu fíkniefna. Við skýrslutöku játaði hann að vera að selja fíkniefni. Efnin voru haldlögð.
Tilkynnt var um líkamsárás í miðborginni þar sem nokkrir aðilar réðust á einn. Aðilarnir fundust ekki þrátt fyrir leit.
Tilkynnt var um umferðarslys þar sem ekið var á reiðhjólamann. Hann var fluttur á slysadeild til frekari aðhlynningar.


Komment