1
Pólitík

Ari Edwald braut lög

2
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

3
Fólk

Læknir og tónskáld selja á Akureyri

4
Fólk

„Þar var ég næstum því dauður“

5
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

6
Pólitík

Brynjar Níels ýtir undir samsæriskenningu

7
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

8
Innlent

Hélt persónuupplýsingum sínum leyndum

9
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

10
Innlent

Askja innkallar KIA-bíla

Til baka

Matvöruverð heldur áfram að hækka

Hækkunin er meiri en í fyrra

Prís
PrísMatvaran er ódýrust í Prís
Mynd: Facebook

Matvöruverð á Íslandi heldur áfram að hækka og hefur hækkað hraðar á fyrstu mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra, samkvæmt nýrri samantekt Verðlagseftirlits ASÍ.

Vörukarfa ASÍ hækkaði um 0,68 prósent milli febrúar og mars og nemur uppsöfnuð hækkun á árinu nú tæpum tveimur prósentum.

Hækkanirnar ná til flestra vöruflokka, en mest hækkun mælist á unnum kjöt- og mjólkurvörum. Þá hafa sælgæti og aðrar dýraafurðir einnig hækkað í verði. Á móti hefur verð á sumum ávöxtum og grænmeti lækkað, þar á meðal appelsínum, sveppum, rótargrænmeti og lauk.

Mismunandi þróun milli verslana

Mest hefur matvöruverð hækkað það sem af er ári í Fjarðarkaupum, eða um 3 prósent, í Nettó um 2,3 prósent og í Bónus um 2 prósent. Athygli er vakin á því að tölur fyrir Fjarðarkaup í mars liggja ekki fyrir og er því miðað við febrúargögn.

Í Krambúðinni hefur verð hins vegar lækkað um 2,4 prósent það sem af er ári.

Mesta hækkun milli mánaða mældist í Extra, þar sem verð hækkaði um 7,6 prósent. Sú hækkun skýrist þó að hluta af verulegri verðlækkun í versluninni mánuðinn áður. Þar á eftir komu Krambúðin með 1,4 prósenta hækkun og Nettó með 1,3 prósent. Minnstar hækkanir voru í Krónunni og Prís, um 0,3 prósent.

ASI
Mynd: ASI

Prís áfram ódýrust

Samkvæmt mælikvarða Verðlagseftirlits ASÍ er Prís áfram ódýrasta verslunin, þar sem verð er að meðaltali aðeins 0,05 prósent yfir lægsta verði sömu vöru.

Næst á eftir koma Bónus og Krónan. Munur á verði er hins vegar verulegur þegar kemur að dýrari verslunum, þar sem vörur í 10-11 eru að jafnaði nær 72 prósentum dýrari en ódýrasti kosturinn.

ASÍ bendir á að niðurstöðurnar beri að skoða með fyrirvara þar sem ekki tókst að safna gögnum úr Fjarðarkaupum fyrir marsmánuð.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti
Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki
Myndir
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans
Innlent

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

Maður grunaður um að myrða tvíbura
Heimur

Maður grunaður um að myrða tvíbura

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð
Innlent

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð

20 skólaþróunarverkefni styrkt
Innlent

20 skólaþróunarverkefni styrkt

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum
Myndir
Fólk

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum

Ökumenn, áfengi og fíkniefni
Innlent

Ökumenn, áfengi og fíkniefni

Peningar

Húrra skellir í lás
Peningar

Húrra skellir í lás

Hefur verið ein þekktasta fataverslun landsins í meira en áratug
Verð á mat og drykk hækkar meira en búist var við
Peningar

Verð á mat og drykk hækkar meira en búist var við

Hafdís Björg stofnar fyrirtæki
Peningar

Hafdís Björg stofnar fyrirtæki

Tæplega 40 þúsund mótmæla kílómetragjaldi
Peningar

Tæplega 40 þúsund mótmæla kílómetragjaldi

„Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þetta“
Peningar

„Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þetta“

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga
Peningar

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga

Loka auglýsingu