
Varaþingmaðurinn Elín Íris Fanndal gerir upp æsku sína í ítarlegu viðtali á Rás 2.
Í viðtalinu opnar hún sig meðal annars um samskipti foreldra sinna en hún segir að þau hafi verið mjög slæm þrátt fyrir góða byrjun. „Það var sjóðheit og logandi ást en svo breytist það eiginlega mjög fljótt. Þau byrja saman, gifta sig mjög hratt og fyrsta barnið kemur mjög fljótt. En pabbi er mikið í burtu og samkomulagið á milli þeirra versnar og versnar.“
Faðir Elínar fór að tortryggja móður hennar meðan hann var í burtu, sem leiddi til háværra rifrilda á heimilinu og ofbeldis sem endurtók sig aftur og aftur. „Þar kom Bakkus við sögu, örugglega langoftast. Þetta hafði gríðarleg áhrif á okkur börnin,“ sagði Elín.
Samkvæmt Elínu yfirgaf móðir hennar fjölskylduna ítrekað og reyndi að koma aftur. Þegar hún reyndi það í síðasta skipti hafi það endað illa.
„Þau koma heim í hádeginu og við börnin skynjum, við erum þrjú, spennuna sem er að myndast á milli þeirra. Við systurnar vitum hvað er að fara að gerast þó að við áttum okkur ekki á því hvernig það muni þróast, þá er eitthvað slæmt í gangi sem mun ekki enda vel,“ og í kjölfarið hafi foreldar Elínar slegist.
Föðurbróðir hennar kom á vettvang, stöðvaði slagsmálin og fór með börnin í bíltúr. Þegar þau sneru aftur var móðir þeirra horfin af heimilinu og ekkert eftir af eigum hennar. Hún hafði tekið allt sitt og farið. Faðir hennar var hins vegar þannig að hann forðaðist að ræða erfiða hluti, og því var brotthvarf móðurinnar aldrei tekið til umræðu.
Faðir Elínar gerði sitt besta til þess að hún og systkini hennar myndu ekki hitta móður sína og segir Elín það hafa verið góða ákvörðun en samkvæmt henni hötuðust foreldrarnir til dauðadags.

Komment