
86 ára konu var bjargað eftir að hafa legið slösuð á gólfi heimilis síns í meira en tíu klukkustundir í íbúðahverfi í suðurhluta Tenerife en fjölmiðlar á Spáni greina frá málinu.
Atvikið átti sér stað aðfaranótt sunnudags þegar konan féll og gat ekki komist á fætur.
Konan lá hjálparvana alla nóttina og fram á morgun með margvíslega áverka. Áhyggjur vöknuðu þegar nágranni bankaði upp á hjá henni á mánudagsmorgni en fékk ekkert svar. Þegar granninn heyrði neyðarköll konunnar hafði hann samband við neyðarlínuna skömmu fyrir klukkan 10:00.
Slökkviliðsmenn, lögregla og sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang. Þar sem ekki var hægt að komast inn um útidyrnar fóru slökkviliðsmenn inn í íbúðina um svalir. Þeir fundu konuna slasaða og ófæra um að hreyfa sig og opnuðu í kjölfarið fyrir viðbragðsaðilum.
Konan var metin á staðnum og reyndist vera með marga áverka. Með aðstoð slökkviliðs var hún flutt á sjúkrabörum í sjúkrabíl og færð á sjúkrahús til frekari meðferðar.

Komment