1
Menning

Kristmundur Axel fáviti eftir allt

2
Peningar

Gugga í Gúmmíbát stofnar fyrirtæki

3
Heimur

Breskur ferðamaður fannst myrtur á hóteli á Tenerife

4
Heimur

Rússneskur dróni nálgaðist flugmóðurskip í Malmö

5
Heimur

Átján mánaða gæsluvarðhald leiddi til sjálfsvígstilraunar

6
Fólk

Einstakt og stórt botnlangahús til sölu

7
Peningar

Hraðfrétta-Benni fer í fyrirtækjarekstur

8
Fólk

„Bilaður ókunnur kall hringdi í mig og spurði hvort ég ætti tvo kærasta“

9
Innlent

Tónlistarmaður sýknaður fyrir hótanir

10
Pólitík

Heyrnar- og talmeinastöðin lögð niður

Til baka

Nytjastuldur, innbrot og eggjakast

Tólf gista fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina

loggan-696x385
Mynd: Lára Garðarsdóttir

Alls voru 69 mál bókuð í kerfum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17:00 í gær til 05:00 í morgun. Hvorki fleiri né færri en 12 gista í fangageymslu lögreglunnar eftir nóttina, samkvæmt dagbók lögreglunnar. Hér má sjá nokkur dæmi um verkefni hennar á tímabilinu.

Lögreglan sem annast Austur og Vesturbæ Reykjavíkur, miðbæinn og Seltjarnarnes handtók þrjá ökumenn sem hún grunaði um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis en einn þeirra var aukreitis grunaður um sölu á fíkniefnum. Var hann vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar. Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir fyrir að vera með filmur í hliðarrúðum en þeir eiga von á sekt.

Lögreglan sem starfar í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi handtók þrjá aðila vegna gruns um nytjastuld vélknúinna farartækja og annarra brota en þeir voru allir vistaðir í klefa í þágu rannsóknar.

Lögreglan sem sinnir útköllum í Kópavogi og í Breiðholti fékk tilkynningu um innbrot og þjófnað í verslun en málið er í rannsókn.

Að lokum stöðvaði lögreglan sem annast verkefni í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ, ökumann fyrir of hraðan akstur en hann reyndist einnig vera með útrunnin ökuréttindi. Á hann von á sekt fyrir bæði brotin.

Þá barst sömu lögreglu tilkynningu um aðila sem var að leika sér að kasta eggjum í bifreið en kauði fannst ekki þegar að honum var leitað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Sístækkandi hópur ungmenna upplifir sig sem dýr
Heimur

Sístækkandi hópur ungmenna upplifir sig sem dýr

Epstein og dularfullu andlátin
Heimur

Epstein og dularfullu andlátin

Tónlistarmaður sýknaður fyrir hótanir
Innlent

Tónlistarmaður sýknaður fyrir hótanir

Páll Winkel kominn með nýtt starf
Fólk

Páll Winkel kominn með nýtt starf

„Bilaður ókunnur kall hringdi í mig og spurði hvort ég ætti tvo kærasta“
Fólk

„Bilaður ókunnur kall hringdi í mig og spurði hvort ég ætti tvo kærasta“

Átján mánaða gæsluvarðhald leiddi til sjálfsvígstilraunar
Heimur

Átján mánaða gæsluvarðhald leiddi til sjálfsvígstilraunar

Brim heldur áfram að græða milljarða
Peningar

Brim heldur áfram að græða milljarða

Crispin Glover sakaður um að ráðast á konu
Myndband
Heimur

Crispin Glover sakaður um að ráðast á konu

Grunsamlegur maður handtekinn nærri heimili Nancy Guthrie
Heimur

Grunsamlegur maður handtekinn nærri heimili Nancy Guthrie

Heyrnar- og talmeinastöðin lögð niður
Pólitík

Heyrnar- og talmeinastöðin lögð niður

Hraðfrétta-Benni fer í fyrirtækjarekstur
Peningar

Hraðfrétta-Benni fer í fyrirtækjarekstur

Innlent

Barn flutt á bráðamóttökuna eftir slys
Innlent

Barn flutt á bráðamóttökuna eftir slys

Tónlistarmaður sýknaður fyrir hótanir
Innlent

Tónlistarmaður sýknaður fyrir hótanir

Unglingar dæmdir fyrir grófa líkamsárás
Innlent

Unglingar dæmdir fyrir grófa líkamsárás

Hætt við áform um unglingaskóla aftan við Skautahöllina í Laugardal
Innlent

Hætt við áform um unglingaskóla aftan við Skautahöllina í Laugardal

Stefán Máni kallar Samfylkingarfólk föðurlandssvikara
Innlent

Stefán Máni kallar Samfylkingarfólk föðurlandssvikara

Loka auglýsingu