1
Innlent

Inga Lind ósátt: „Fyrir þetta fengu Þingeyringar níu störf í þorpinu“

2
Innlent

Segir Alexöndru Briem vera „kynskipting“

3
Innlent

Umfangsmikil lögregluaðgerð í Laugardal

4
Innlent

Hundur Magnúsar hvarf í öldurnar

5
Innlent

Guðmundur í Brimi opnar sig um afsögn sína

6
Innlent

Anna gagnrýnir „Málþófsdrottninguna“

7
Innlent

Slógust á bar í Laugardalnum

8
Innlent

Bandaríska sendiráðið gagnrýnt fyrir áróður

9
Innlent

„Ófullnægjandi viðbrögð af hálfu HÍ“

10
Innlent

Vill að matvöruverslanir sniðgangi vörur frá Ísrael

Til baka

Öll börn fædd árið 2025 fá gefins Barnabónus

Andvirði a.m.k 150 milljóna króna í Barnabónus til nýfæddra barna

barnabox3
BarnabónusinnBoxið er aldeilis búbót fyrir nýbakaða foreldra.
Mynd: Aðsend

Bónus fagnar nýjum einstaklingum með veglegri gjöf. Barnabónus er nýtt verkefni sem Bónus hefur hleypt af stokkunum til að styðja við bakið á barnafjölskyldum og létta þeim lífið í þessum nýja kafla lífsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bónus.

„Barnabónus er veglegur upphafspakki með nauðsynlegum vörum sem ættu að nýtast vel hinu nýfædda barni og foreldrum þess á fyrstu mánuðunum eftir fæðingu,“ segir Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus.

Í fréttatilkynningunni segir að Bónus hafi í 36 ár tekið þátt í að auka hagsæld á Íslandi og stuðlað að því að bæta lífsgæði fjölskyldna með því að bjóða nauðsynjavörur á kostakjörum. Fellur því þetta verkefni vel að stefnu og grunngildum Bónus, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Finnsk fyrirmynd

„Hugmyndin að Barnabónus kemur upprunalega frá Finnlandi en Barnaboxið þar í landi hefur verið eitt af þekktustu og áhrifaríkustu félagslegu verkefnum Finna frá því fyrir miðja 20. öld,“ útskýrir Björgvin. Árið 1938 kom finnska ríkið Barnaboxinu á fót, til að styðja við bakið á nýjum foreldrum og draga úr útbreiddri fátækt í landinu. Boxinu var ætlað að tryggja aðgengi foreldra nýfæddra barna að nauðsynjavörum og búnaði og að öll börn fengju sömu tækifæri í upphafi, óháð fjárhagsstöðu foreldranna.

„Okkar Barnabónus er hugmynd af svipuðum toga, því okkur er annt um viðskiptavini og velferð þeirra. Við vonum að vörurnar í kassanum komi sér vel, en þær eru valdar í samvinnu við fagfólk,“ segir Björgvin.

Gjöf sem eykur vellíða

Bónus nýtur meðal annars leiðsagnar Helgu Reynisdóttur ljósmóður við val á vörum.

„Í boxinu verða vörur fyrir barnið en þessi tími, fyrst eftir fæðingu, er tími breytinga, undra og uppgötvana,“ segir Helga. Það sé því mikilvægt fyrir foreldra að þau séu í jafnvægi og sinni vel sinni andlegu og líkamlegu heilsu. „Svona gjöf er stór liður í því að auka vellíðan á þessum tíma og létta á fjárhagsáhyggjum hjá nýbökuðum foreldrum,“ segir Helga. Í Barnabónus er til dæmis að finna ungbarnagalla, bleiur, blautþurrkur, tannbursta og tannkrem, dömubindi, snuð, krem, andlitskrem fyrir móðurina, lekahlífar, Milt þvottaefni, og margt fleira.

Barnabox
BarnabónusinnÝmislegt nytsamlegt má finna í boxinu.
Mynd: Aðsend

Það eina sem þarf að gera til að fá slíkan Barnabónus er að skrá sig á bonus.is/barnabonus. Andvirði hverrar gjafar er talsverður og fjöldi samstarfsaðila sem þarf til þess að koma svo stóru verkefni á laggirnar.

„Við erum afskaplega þakklát fyrir hve vel samstarfsaðilar okkar tóku í þessa hugmynd og hjálpuðu okkur að gera hana að veruleika,“ segir Björgvin.

Sjálfboðaliðar gefa vinnu sína til styrktar Gleym mér ei

„Það er mikil vinna sem liggur að baki svona verkefni,“ útskýrir Björgvin en Bónus naut aðstoðar fjölda sjálfboðaliða sem gefa vinnu sína til styrktar Gleym mér ei.

Sjálfboðaliðar frá Gleym mér ei
Sjálfboðaliðar frá Lady Circle„Það er mikil vinna sem liggur að baki svona verkefni“
Mynd: Aðsend

„Ein af lykilstoðum verkefnisins er að styðja við öll börn í landinu og því teljum við mikilvægt að styðja við bakið á öllum foreldrum og það er heiður að styrkja félag eins og Gleym mér ei,” segir verkefnastjóri verkefnisins, Pétur Sigurðsson.

„Allt í allt gerum við ráð fyrir að gefa 5.000 Barnabónusbox á þessu ári, samtals að andvirði a.m.k. 150 milljóna króna,“ segir Björgvin. „Vonandi verða gjafirnar mikil búbót fyrir fjölskyldur á þessum tímamótum í lífi þeirra og létta undir með þeim, en eins og við vitum öll þá fylgir því ærinn kostnaður að eignast barn.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment


Aðgerð
Innlent

Umfangsmikil lögregluaðgerð í Laugardal

Lögreglumenn framkvæmdu ítarlega leit í húsinu og bílskúr
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra
Pólitík

Dómsmálaráðherra vill þyngja refsingar við ofbeldisbrotum

Friðrik Ingi Friðriksson formaður FA
Innlent

„Ófullnægjandi viðbrögð af hálfu HÍ“

Ratina
Heimur

Alvarleg stunguárás í Finnlandi

Helen Ólafsdóttir
Innlent

Vill að matvöruverslanir sniðgangi vörur frá Ísrael

Magnús Þór Hafsteinsson
Innlent

Hundur Magnúsar hvarf í öldurnar

Svín
Innlent

Sýklalyfjaónæmar bakteríur í íslenskum svínum

Inga Lind Karlsdóttir
Innlent

Inga Lind ósátt: „Fyrir þetta fengu Þingeyringar níu störf í þorpinu“

Bandaríska sendiráðið
Innlent

Bandaríska sendiráðið gagnrýnt fyrir áróður

Stefán Einar Stefánsson
Innlent

Segir Alexöndru Briem vera „kynskipting“

Palestínski fáninn við ráðhús Reykjavíkur
Innlent

Flagga til að sýna samstöðu með palestínsku þjóðinni

Guðmundur Kristjánsson
Innlent

Guðmundur í Brimi opnar sig um afsögn sína

Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Anna gagnrýnir „Málþófsdrottninguna“

Peningar

Herdís Dröfn
Peningar

Línulegt áskriftarsjónvarp Stöðvar 2 liðið undir lok

Boða „nýjan kafla í íslenskri sjónvarpssögu“. Spurningar vakna um enska boltann.
Costco mynd Mannlíf
Peningar

Blússandi hagnaður hjá Costco á Íslandi

Einar Bárðarson
Peningar

SVEIT hefur kært ákvörðun Samkeppniseftirlitsins

Neytendastofa
Peningar

Sektað vegna rangra upplýsinga

Dómkirkjan
Peningar

Hægist á uppgreiðslum óverðtryggðra lána en aukning á verðtryggðum lánum

Hús húsnæði heimili fasteignir
Peningar

Óvænt verri verðbólga hækkar verðtryggð lán

Loka auglýsingu