1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

3
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

4
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

5
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

6
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

7
Minning

Megas er látinn

8
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

9
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

10
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Til baka

Björn gagnrýnir „sundrungu“ meðal blaðamanna

„En maður getur vitaskuld ekki stutt kollega sína í hvaða vitleysu sem er.“

Björn Þorláksson blaðamaður
Björn ÞorlákssonBjörn kallar eftir samstöðu

Björn Þorláksson, þáttastjórnandi á Samstöðinni, gagnrýnir harðlega það sem hann segir vera vaxandi sundrungu innan stéttar blaðamanna á Íslandi. Í færslu á Facebook fjallar hann sérstaklega um viðbrögð við umdeildri umfjöllun Morgunblaðsins, svonefndu „bílakjallaramáli“ og á þá við forsíðufrétt Morgunblaðsins frá í gærmorgun þar sem því var slegið fram sem staðreynd að þeir sem handteknir voru fyrir líkamsárás á Höfðatorgi væru Hamas-liðar, eftirlýstir af Interpol. Það reyndist hins vegar ekki rétt, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.

Björn segir að hann hafi orðið fyrir gagnrýni frá öðrum blaðamönnum eftir að hann fjallaði um málið:

„Sumir blaðamenn hafa djöflast í mér með einkaskilaboðum síðan ég skrifaði um Moggann í gær og fjallaði um með beittum hætti við Rauða borðið.“

Hann segir jafnframt að krafa hafi verið gerð um að blaðamenn sýni samstöðu, en hafnar því að slíkt eigi við í öllum tilfellum:

„En maður getur vitaskuld ekki stutt kollega sína í hvaða vitleysu sem er.“

Í færslunni leggur Björn áherslu á að kjarni góðrar blaðamennsku felist í faglegum vinnubrögðum og gagnrýnir það sem hann kallar „antíblaðamennsku“:

„Góð blaðamennska er fyrst og fremst vinnubrögð. Vinnubrögð, verklag, agi. Nafnlaus skoðanagrein, klædd í gervi fréttar, forsíðuæsiskoðanagrein, með nafnlausum heimildum, grein sem lögregla ber til baka skömmu síðar [...] er andstæða góðra vinnubragða.“

Hann telur umfjöllun af þessu tagi geta haft alvarlegar afleiðingar í viðkvæmu samfélagi:

„Þegar um ræðir viðkvæmt mál á viðkvæmri stundu í viðkvæmum heimi þar sem bil milli manna og hópa eykst með hverju degi [...] geta aðrir blaðamenn vitaskuld ekki staðið með svo lágkúrulegu höggi fyrir neðan beltisstað fólks í viðkvæmri stöðu.“

Þrátt fyrir gagnrýnina segir Björn að margt gott fólk starfi hjá Morgunblaðinu, en telur að ákveðin öfl innan miðilsins séu á villigötum:

„Moggann skipar vænt fólk í stórum stíl [...] En öfl þarna innanborðs eru á villigötum. Þau nota áróðursbrögð undir hatti blaðamennsku sem þau halda fram að sé gild, en er það ekki.“

Að lokum segir hann að blaðamenn eigi ekki að standa saman um allt, heldur fyrst og fremst um fagleg vinnubrögð:

„Við blaðamenn ættum einfaldlega að standa saman með góðri blaðamennsku en standa gegn vitleysu sem elur á sundrungu og fordómum.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu