Lögregla sinnti fjölda verkefna á höfuðborgarsvæðinu í dag, þar á meðal vegna óspektar í verslun, aksturs undir áhrifum fíkniefna og umferðaróhappa.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í verslun í hverfi 108 vegna manns sem var til vandræða innandyra. Honum var vísað á brott af vettvangi.
Í miðborginni var aðili handtekinn sem grunaður er um sölu og dreifingu fíkniefna. Sá hinn sami er einnig grunaður um ólöglega dvöl hér á landi og var vistaður í fangaklefa.
Í Hafnarfirði var ekið á ljósastaur með þeim afleiðingum að tjón varð bæði á bifreið og staurnum. Engin slys urðu á fólki.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir í Kópavogi. Í báðum tilvikum reyndust þeir undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra er einnig grunaður um ólöglega dvöl hér á landi og var vistaður í fangaklefa. Hinn ökumaðurinn var auk þess án ökuréttinda og bifreið hans reyndist ótryggð.
Þá varð umferðaróhapp á Suðurlandsvegi þar sem ekið var á vegrið. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin var flutt á brott með kranabíl.


Komment