1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

4
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

5
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

6
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

7
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

8
Minning

Hörður Torfa kveður Megas

9
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

10
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Til baka

Ver aðgerðir vegna Gaza og gagnrýnir íslenska umræðu

„Raunar má segja að blaðamenn Morgunblaðsins (auk fulltrúa Sjálfstæðisflokksins) séu þau einu í heiminum sem halda slíkum ákúrum á lofti“

María Lilja Ingveldur Þrastadóttir Kemp
María LiljaMaría Lilja gagnrýnir íslenska umræðu

María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, blaðamaður hjá Samstöðinni og stjórnarmeðlimur í Solaris, segir í pistli á Vísi að aðgerðir Íslendinga til að aðstoða fólk frá Gaza hafi verið knúnar áfram af siðferðilegri skyldu og neyðarástandi sem hún lýsir sem „helvíti á jörð“, með vísan í mat Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Hún segir að ákvörðunin um að fara til Kaíró hafi sprottið af því að stjórnvöld hafi ekki brugðist við:

„Þegar undirrituð komst að því að það væri smuga að aðstoða fjölskyldur vina og kunningja hér á landi út úr aðstæðum á Gaza sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lýsti sem „helvíti á jörð“ rann mér blóðið til skyldunnar að gera eitthvað, því ég gat það.“

„Stórt samvinnuverkefni“

Að hennar sögn þróaðist verkefnið hratt í umfangsmikið samstarf:

„Sagan sem hófst með óvissuferðalagi þriggja kvenna til Kaíró varð að stóru samvinnuverkefni tuga sjálfboðaliða, hjálparsamtaka og íslensku þjóðarinnar.“

Hún segir að verkefnið hafi meðal annars falist í því að fjármagna ferð flóttafólks yfir landamæri og koma því í hendur Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (IOM), sem flutti það til Íslands samkvæmt samningi við ríkið.

María Lilja leggur áherslu á að um hafi verið að ræða fólk með lögmæt leyfi:

„Flóttafólkið sem íslenska ríkið dró of lengi að sækja úr hörmungunum hafði allt sannarlega lögmæt útgefin dvalarleyfi; leyfi ríkisins að sameinast ástvinum sínum hér á landi.“

Umdeilt kerfi en „eina leiðin út“

Í pistlinum fjallar hún ítarlega um egypska fyrirtækið Hala, sem hún segir hafa verið eina raunhæfa leiðin út úr Gaza án diplómatískrar íhlutunar.

„Án diplómatískrar íhlutunar íslenskra stjórnvalda var eini og besti kosturinn egypska fyrirtækið Hala,“ skrifar hún.

Hún lýsir starfsemi fyrirtækisins sem umdeildu kerfi þar sem greiðslugeta ráði miklu, en bendir á að alþjóðlegir fjölmiðlar hafi fyrst og fremst gagnrýnt kerfið sjálft en ekki þá sem nýta það.

Gagnrýnir íslenska umræðu

María Lilja segir að umfjöllun erlendra miðla sé samhljóða að þessu leyti og birtir fjölmarga hlekki á erlendar fréttir, máli sínu til stuðnings.

„Það sem allar þessar umfjallanir eiga sammerkt er hvernig ábyrgðin er staðsett þar sem kerfið og valdið liggur en ekki hjá þeim sem reyna að bjarga lífi sínu eða annarra.“

Hún segir það hins vegar sérkennilegt að hér á landi hafi gagnrýnin beinst að einstaklingum og samtökum:

„Það vekur þó athygli að þrátt fyrir harða og ítarlega gagnrýni fjölmiðla á fyrirtækið sjálft beinist sú gagnrýni aldrei gegn þeim sem nýta þjónustu fyrirtækisins né einstaklingum sem aðstoða þá. Þvert á móti er sagan sögð frá sjónarhorni fólks sem flýr loftárásir, hungur og hörmungar; fólks sem selur síðustu eigur sínar, skuldsetur sig og greiðir þúsundir dollara til að reyna að bjarga sér og sínum.“

Hún heldur áfram:

„Engin af þessum umfjöllunum sakar hjálparsamtök eða einstaklinga um að hafa greitt mútur. Engin af þessum umfjöllunum setur fram staðfestar eða rökstuddar ásakanir um mútugreiðslur af hálfu þeirra sem komast út.“

Hún bætir við:

„Engin af þessum umfjöllunum gerir flóttafólkið eða þau sem reyna að hjálpa því að gerendum; ábyrgðin er sett þar sem hún á heima, hjá kerfinu og þeim sem hagnast á því.“

María Lilja tekur blaðamenn Morgunblaðsins út fyrir sviga:

„Raunar má segja að blaðamenn Morgunblaðsins (auk fulltrúa Sjálfstæðisflokksins) séu þau einu í heiminum sem halda slíkum ákúrum á lofti opinberlega án þess að hafa fært fyrir þeim fullyrðingum nokkrar sannanir.“

Segir ábyrgðina liggja hjá kerfinu

María Lilja segir að í alþjóðlegri umræðu sé ábyrgðin skýr:

„Gagnrýnin beinist, réttilega, að kerfinu sjálfu, ekki fólkinu sem flýr þjóðarmorð eða einstaklingum eða samtökum sem hjálpa því.“

Að hennar mati er það undantekning að þeir sem flýja eða aðstoða séu gerðir að sökudólgum:

„Í sögulegu samhengi er það hreinlega algjör undantekning að þau sem flýja stríð og ofsóknir eða þau sem rétta þeim hjálparhönd séu gerðir að sökudólgum líkt og gert hefur verið hér á landi undanfarin misseri.“

María Lilja er blaðamaður á Samstöðinni og situr í stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir flóttafólk.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu