
Lögregla hafði afskipti af nokkrum ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna í gærkvöldi og nótt.
Í Grafarvogi var ökumaður stöðvaður og reyndist hann bæði undir áhrifum og sviptur ökuréttindum. Sambærilegt mál kom upp í öðru hverfi Reykjavíkur þar sem ökumaður var ekki aðeins undir áhrifum áfengis og fíkniefna heldur einnig án ökuréttinda og mældist á 103 km hraða þar sem hámarkshraði er 60 km á klukkustund.
Þá var annar ökumaður stöðvaður í Garðabæ og reyndist hann ölvaður við akstur.
Í Reykjavík var einstaklingur handtekinn vegna gruns um líkamsárás. Sá var vistaður í fangageymslu lögreglu að lokinni handtöku.
Einnig voru skráningamerki fjarlægð af sjö bifreiðum vegna vanrækslu á skoðun og/eða tryggingum.
Að auki var tilkynnt um innbrot í geymslur í fjölbýlishúsi í Breiðholti.

Komment