
Að morgni 28. febrúar 2026 varð stúlkuskólinn Shajareh Tayyebeh í Minab í suðurhluta Írans fyrir eldflaugaárás þegar Bandaríkin og Ísrael hófu hernaðaraðgerðir gegn landinu. Byggingin eyðilagðist og þakið hrundi yfir nemendur og kennara.
Írönsk yfirvöld segja 165 manns hafa látist, flest stúlkur á aldrinum 7 til 12 ára, og að minnsta kosti 95 hafi særst.
Neita vitneskju
Bandarísk og ísraelsk yfirvöld sögðust ekki vita að skóli hefði orðið fyrir árás. Vefsíður og samfélagsmiðlareikningar tengdir Ísrael héldu því fram að um hernaðarsvæði hefði verið að ræða.
Greining stafrænnar rannsóknareiningar Al Jazeera á gervihnattamyndum, myndskeiðum og opinberum gögnum sýnir hins vegar allt aðra mynd. Niðurstöðurnar benda til þess að skólinn hafi verið skýrt aðskilinn frá herstöðinni í að minnsta kosti tíu ár. Myndskeið sýna tvo aðskilda sprengjustaði, einn á herstöðinni og annan á skólanum, sem bendir til beinnar árásar á báða staði.
Greining miðilsins sýnir að svæðið var aðskilið frá hernaðarnotkun árið 2016 og breytt í sjálfstæða borgaralega stofnun með eigin inngangi. Ný heilsugæslustöð á sama svæði, opnuð 2025, slapp hins vegar ósködduð í árásinni.
Þetta vekur spurningar um hvort árásin hafi byggst á úreltum upplýsingum eða hvort skólinn hafi verið markvisst talinn hluti hernaðarkerfisins.
Vitnisburður kennarasamtaka segir að rýming hafi hafist þegar árásir hófust, en tíminn hafi verið of skammur til að bjarga börnunum. Líkhús fylltust og kælibílar voru notaðir til að geyma lík.
Málið er nú nefnt sem eitt alvarlegasta atvik þar sem borgaraleg mannvirki hafa orðið fyrir árás í átökunum.
Al Jazeera rifjar upp fyrri dæmi um árásir Ísraela og Bandaríkjamanna á borgaraleg mannvirki:
- Bahr al-Baqar-skólinn í Egyptalandi 1970 (46 börn létust),
- Amiriyah-skjólið í Bagdad 1991 (408 borgarar létust),
- Qana í Líbanon 1996 (106 létust),
- MSF-sjúkrahúsið í Kunduz 2015 (42 létust),
- Umfangsmiklar árásir á skóla á Gaza frá 2023.
Niðurstaða
Samkvæmt rannsókn Al Jazeera er sú staðreynd að nýleg heilsugæslustöð var hlíft en fullsetinn grunnskóli varð fyrir beinni árás skilur eftir tvær sviðsmyndir, báðar alvarlegar:
Annaðhvort var um stórfellda upplýsinga- og skipulagsmistök að ræða með lítilsvirðingu fyrir borgaralegu lífi, eða árásin var framkvæmd af ásetningi til að valda samfélagslegu áfalli og veikja stuðning við hernaðaryfirvöld Írans.

Komment