1
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

2
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

3
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

4
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

5
Minning

Megas er látinn

6
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

7
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

8
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

9
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

10
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Til baka

Bandaríkjaher hefur ekki og mun ekki nota Ísland við árásir á Íran

„Ísland er fullvalda ríki og hefur fullt forræði yfir eigin landssvæði og landhelgi landsins.“

Blaðamannafundur ríkisstjórnar
Þorgerður Katrín og Kristrún FrostaSvör utanríkisráðuneytisins voru stutt en skorinort.
Mynd: Víkingur

Her Bandaríkjanna hefur ekki notað Ísland sem aðstöðu fyrir hernaðaraðgerðir gagnvart Íran. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðuneytisins við spurningum Mannlífs.

Á laugardaginn hófu Bandaríkin og Ísrael sameiginlegar loftárásir á Íran þar sem æðsti klerkur landsins var myrtur, sem og yfir hundrað stúlkur í grunnskóla. Íran hefur svarað árásunum af hörku með loftárásum á Ísrael og bandarískar herstöðvar í nágrannalöndum sínum.

Árið 2017 var varnarsamingnum á milli Bandaríkjanna og Íslands, breytt, án aðkomu þingsins en Guðlaugur Þór Þórðarson var þá utanríkisráðherra. Breytingin fól í sér að Bandaríkin fengu, án endurgjalds, aðgengilegar starfsstöðvar eða Operational Locations eins og það heitir á ensku, sem herinn hefði óhindraðan aðgang að og notkun á, og það án þess að Ísland fái greitt fyrir.

Mannlíf spurði utanríkisráðuneytið hvort Bandaríkjaher hefði eða hyggðist nýta Ísland á einhvern hátt við árásir sínar á Íran. Hvort það standi til að nýta íslenska grund, lofthelgi eða landhelgi Íslands, við árásir á Íran.

Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins svaraði stutt en skorinort:

„Nei. Það hefur ekki verið gert og engin áform eru uppi um slíkt.“

Aðspurður hvort íslensk yfirvöld hefðu neitunarvald ef Bandaríkin hefðu hug á að nota Ísland í þeim tilgangi að ráðast á Íran, svaraði Ægir Þór:

„Ísland er fullvalda ríki og hefur fullt forræði yfir eigin landssvæði og landhelgi landsins.“

Skyndimótmæli hafa verið boðuð fyrir framan utanríkisráðuneytið í dag, klukkan 16:00, þar sem þess verður krafist að utanríkisráðuneytið fordæmi árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu