Fimm ungmenni komu fyrir dómstól í Svíþjóð í dag, grunuð um aðild að tilraun til manndráps á írönskum andófsmanni í suðurhluta landsins.
Sá sem um ræðir er fræðimaðurinn Arvin Khoshnood, sem hefur lýst yfir stuðningi við son síðasta keisara Írans. Hann hefur í samtölum við sænska fjölmiðla sagt að hann telji árásina hafa verið skipulagða af glæpaneti, mögulega að undirlagi íranskra yfirvalda.
Samkvæmt ákæruvaldi átti atvikið sér stað 2. september 2025 í borginni Malmö. Þá hafi einn sakborninganna, 16 ára piltur vopnaður hnífi, bankað upp á á heimili Khoshnoods. Eiginkona hans opnaði dyrnar, en pilturinn spurði hvort eiginmaður hennar væri heima.
Khoshnood, sem var staddur inni í húsinu, lét ekki á sér bera og hafði þegar samband við lögreglu, samkvæmt gögnum málsins.
Saksóknarar telja að pilturinn hafi verið fenginn til verksins í gegnum dulkóðuð skilaboðaforrit, þar sem honum hafi verið lofað greiðslu fyrir að fremja verknaðinn. Þrír hinna ákærðu, auk fjórða einstaklings sem talinn er hafa verið skipuleggjandi en hefur ekki verið nafngreindur, eru sagðir hafa veitt leiðbeiningar, útvegað vopn og samið um skilmála fyrirhugaðs verknaðar.
Þrjú ungmennanna eru ákærð fyrir tilraun til manndráps, en hin tvö fyrir hlutdeild í brotinu.

Komment