1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Landið

Björgunarsveit þurfti að bjarga þingmanni

3
Landið

Kona ákærð fyrir náttúruspjöll

4
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

5
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

6
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

7
Fólk

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku

8
Peningar

Fyrrum unglingalandsliðsmaður fær nýtt og spennandi starf

9
Heimur

Rannsókn bendir til þess að loftárásin á stúlknaskólann hafi verið viljaverk

10
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Til baka

Reykjavíkurborg leyfir bjórnum að flæða

Skál í botn segja sumir

Fótbolti
Áhorfendur á LaugardalsvelliÞarna verður drukkið áfengi.
Mynd: Víkingur

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur stýrihóps um breytingar á málsmeðferðarreglum  um veitinga- og gististaði. Greint er frá þessu í tilkynningu frá borginni.

Meðal breytinga er að áfengisveitingar eru leyfðar í tengslum við íþróttaviðburði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Breytingar á reglunum miða að því að skýra ábyrgð og verkferla í stjórnsýslu borgarinnar og tryggja að íbúar og rekstraraðilar hafi skýrar og aðgengilegar leiðir til að bregðast við ábendingum um hávaða, opnunartíma og notkun borgarlands. 

Breytingarnar eru eftirfarandi:

  • 1. Í 3. grein verði felld út setning um að borgarráð geti takmarkað opnunartíma veitingastaða. Jafnframt verði bætt inn setningu um að íbúar geti leitað til heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem fer með umhverfiseftirlit, sem nær til hávaða frá veitinga- og skemmtistöðum.
  • 2. Í 4. grein er skýrt frekar að klukkustund sem gefin er til rýmingar á veitingastöðum er tími fyrir gesti til að yfirgefa staðinn, en ekki sem viðbótaropnunartími.
  • 3. Að 9. grein um að nektarstaðir séu óheimilir verði felld brott þar sem slík  starfsemi er þegar bönnuð samkvæmt 4. grein laga númer 85/2007.
  • 4. Að bætt verði við setningu í 8. grein um að fyrir útiveitingasvæði á borgarlandi þurfi afnotasamningur að fylgja umsókn um rekstrarleyfi.
  • 5. 11. grein verði breytt á þann veg að áfengisveitingar í tengslum við íþróttaviðburði séu ekki bannaðar heldur heimilar að uppfylltum ákveðnum         skilyrðum.

Varðandi breytingu á 11. grein þá segir í umsögn stýrihóps að tillagan taki mið af þeirri þróun sem orðið hefur í framkvæmd undanfarinna ára. 

Í greinargerð hópsins segir ennfremur:

Síðustu ár hefur borgarráð fallist á að heimila áfengisveitingar í tengslum við einstaka íþróttaviðburði og þannig veitt undanþágur frá núverandi banni við áfengisveitingum í tengslum við íþróttaviðburði. Einnig eru sum íþróttafélög með varanlegt rekstrarleyfi í veislusölum sem hafa verið nýtt til sölu áfengis á íþróttaviðburðum. Þetta hefur skapað ófyrirsjáanleika og ójafnræði á veitingasölu íþróttafélaga á íþróttaviðburðum. 

Með breytingunni er markmiðið að skapa skýrt, sanngjarnt og gagnsætt regluverk þar sem gætt er meðalhófs. Jafnframt er breytingunni ætla að tryggja ábyrga, skýra og vel útfærða umgjörð um áfengissölu á íþróttaviðburðum til að verja börn og ungmenni í samræmi við forvarnarsjónarmið.

Rekstrarleyfi

Íþróttafélögum sem ekki hafa rekstrarleyfi er bent á að sækja þarf um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki 2 (umfangslitlir áfengisveitingastaðir). Sótt er um hjá Sýslumanni höfuðborgarsvæðisins.

Þegar umsóknir um rekstrarleyfi vegna veitingastaðar/gististaðar berast frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu fara þær til meðferðar hjá Reykjavíkurborg sem er lögbundinn umsagnaraðili um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“
Heimur

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

Limminnsti maður heims biðst afsökunar
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum
Myndband
Heimur

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Sport

Sigmundur Davíð hrósar innflytjendum
Sport

Sigmundur Davíð hrósar innflytjendum

Miðflokksformaðurinn vill styrkja íshokkí-íþróttina hér á landi
Mikil ánægja með árangur landsliðsins
Sport

Mikil ánægja með árangur landsliðsins

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum
Sport

Íþróttalýsir gagnrýndi ísraelskan keppanda í beinni á Vetrarólympíuleikunum

Stelpurnar mæta heimsmeisturunum
Sport

Stelpurnar mæta heimsmeisturunum

Reykjavíkurborg leyfir bjórnum að flæða
Sport

Reykjavíkurborg leyfir bjórnum að flæða

Guðmundur fær tólf mánaða styrk
Sport

Guðmundur fær tólf mánaða styrk

Loka auglýsingu