
Karlmaður úr Laugardalnum hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti.
Hann er ákærður fyrir að hafa á tímabilinu 3. maí 2024 til 9. maí 2024 tekið við samtals 7.500 kr., 11.140 evrur og 1.850 bandaríska dollara í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum en honum gat ekki dulist að um væri að ræða ávinning af refsiverðum brotum. Maðurinn var með reiðuféð í fórum sínum þegar hann var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 9. maí 2024 á leið til Madríd á Spáni.
Með háttsemi sinni móttók maðurinn ávinning af refsiverðum brotum, geymdi ávinninginn, flutti og leyndi ávinningnum og upplýsingum um uppruna, eðli, staðsetningu og ráðstöfun hans.
Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Mál hans verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness þann 13. maí en lögreglustjórinn á Suðurnesjum er ákærandi í málinu.
Komment