
Í síðustu viku mætti fjölmiðlamaðurinn og siðfræðingurinn knái Stefán Einar Stefánsson í viðtal í hlaðvarpsþættinum Ein Pæling. Ræddi Stefán þar ýmislegt og er hægt að nefna ESB, Jafnréttisstofu og múslima.
Einnig ræddi siðfræðingurinn um skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi.
„Við erum hér að eiga við uppgang glæpahópa, meðal annars albönsku mafíunnar og palestínsku mafíunnar sem kemur hér í gegnum Svíþjóð,“ sagði Stefán í þættinum.
Mannlíf sendi fyrirspurn á embætti ríkislögreglustjóra til að spyrjast fyrir um málið
„Líkt og fram hefur komið í skýrslum greiningardeildar er fjöldi skipulagðra brotahópa á Íslandi talsverður,“ sagði Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri embætti ríkislögreglustjóra.
„Margir þessara hópa eru í auknum mæli með erlendar tengingar og sumum jafnvel stýrt af einstaklingum erlendis frá. Lögreglan hefur upplýsingar um tengsl brotahópa sem starfa á Íslandi erlendis, m.a. við Miðausturlönd, Suður-Ameríku og Austur-Asíu. Fæstir þessara hópa eru byggðir upp af einstaklingum frá aðeins einu ríki eða af einu þjóðarbroti þó að í sumum þeirra séu einstaklingar frá ákveðnum svæðum meira áberandi en aðrir.“
Mannlíf sendi í kjölfarið framhaldsspurningar en þeim hefur ekki verið svarað.

Komment