
Þann 5. febrúar 2025 bárust fregnir af því að rússnesk yfirvöld hefðu handtekið Ivan Semenikhin, starfsmann rannsóknardeildar innanríkisráðuneytisins, og ákært hann fyrir landráð. Nánari upplýsingar um málið hafa ekki verið gerðar opinberar, en mál sem varða landráð í Rússlandi eru leynileg og rekin fyrir luktum dyrum.
Samkvæmt BBC News Russian hafði Greg Squire, sérfræðingur hjá U.S. Department of Homeland Security sem rannsakar barnaníð á myrkvavefsspjallsvæðum (e. Dark Web), fundið myndir af horfnum dreng á netinu og látið Semenikhin vita. Með aðstoð erlendra samstarfsaðila tókst Semenikhin að hafa hendur í hári barnaræningjans og barninu var skilað heim á lífi. BBC News Russian bendir á að þetta hafi verið eitt af fáum tilvikum á undanförnum árum þar sem rússnesk lögregla viðurkenndi opinberlega að aðstoð Interpol hefði skipt máli við lausn máls.
Árið 2024 greindu Semenikhin og Squire einnig frá öðrum rússneskum manni sem hafði beitt son sinn og vini hans kynferðisofbeldi. Squire sagði BBC News Russian að þeir tveir hefðu ekki aðeins unnið saman heldur einnig orðið vinir. Í febrúar 2025 hætti Semenikhin hins vegar að svara skilaboðum hans.
Óljóst er hvort ákærurnar fyrir landráð tengjast samstarfi Semenikhins við erlenda rannsakendur. Ivan Pavlov, lögmaður sem sérhæfir sig í landráðamálum, telur að rússnesk yfirvöld kunni eftir á að hafa túlkað slík samskipti sem njósnir eða uppljóstrun ríkisleyndarmála. Hann segir að þetta mynstur hafi áður sést í málum sem varða vísindamenn. „Það sem áður var talið eðlileg samskipti er nú endurmetið,“ sagði Pavlov.
Squire segist hafa orðið sleginn við ákærurnar. „Hann er vinur minn. Ég á engin tengsl eftir í Rússlandi. Allt er orðið hljótt,“ sagði hann við BBC News Russian. „Það er ekki bara þannig að við höfum misst vin okkar. Börn í ykkar landi, í Rússlandi, þurfa hetjur eins og hann, og nú hafa þau enga slíka.“

Komment