
BarónsstígurMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Skjáskot/Ja.is
Tveir karlmenn hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir að selja fíkefni en málið var tekið fyrir í Héraðsdomi Reykjavíkur.
Mennirnir voru ákærðir fyrir fíkniefnalagabrot í félagi með því að hafa, fimmtudaginn 21. október 2021, utandyra við hús að Barónsstíg í Reykjavík, haft í vörslum sínum, ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni, samtals 47,3 grömm af maríjúana sem mennirnir framvísuðu við lögreglu umrætt sinn og hald var lagt á.
Báðir játuðu sök í málinu en annar þeirra hafði brotið af sér áður og hlaut þá fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Mennirnir voru dæmdir báðir í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Þá voru tveir símar gerðir upptækir ásamt fíkniefnunum.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment