1
Pólitík

Inga Sæland flaug á fyrsta farrými á EM

2
Innlent

Bubbi tekur forseta Alþingis og Viðreisn á beinið

3
Innlent

Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir slys

4
Fólk

Stjörnulögmaður fær nýja vinnu

5
Fólk

Glæsilegt einbýlishús með sjávarútsýni á Seltjarnarnesi til sölu

6
Pólitík

„Heldur Jens Garðar virkilega að það ástand sem ríkir í Palestínu sé friður?“

7
Innlent

Fórnarlamb flutt á slysadeild eftir árás

8
Heimur

Að minnsta kosti 11 látnir í hörðum árekstri vörubíls og smárútu

9
Heimur

Ray J. segist vera dauðvona

10
Heimur

15 ára piltur játaði morð á 12 ára dreng í Birmingham

Til baka

Selja glæsihýsi við sjávarsíðuna

Þvílíkt útsýni á stórkostlegum stað

Sæbólsbraut
Sæbólsbraut 34780 fermetra sjávarlóð í Kópavogi

Á eftirsóttum stað við Sæbólsbraut í Kópavogi stendur þetta glæsilega og afar vandaða pallbyggða einbýlishús sem býður upp á einstaka lífsgæði við sjávarsíðuna og er það til sölu.

Húsið er 360,1 fermetri að stærð og stendur á rúmgóðri 780 fermetra sjávarlóð með fallegum gönguleiðum og útivistarsvæðum við Fossvoginn í næsta nágrenni. Um er að ræða bjart og smekklega hannað heimili þar sem áhersla hefur verið lögð á gæði, rými og tengingu við náttúruna.

Við komu inn í húsið tekur á móti gestum rúmgóð og flísalögð forstofa sem tengist parketlögðu holi með góðum fataskápum. Gesta baðherbergi hefur nýlega verið endurnýjað og er flísalagt með upphengdu salerni og opnanlegum glugga. Eldhúsið er opið, bjart og afar glæsilegt með eyju, granítborðplötum, vönduðum efri og neðri skápum, borðkrók og góðri lofthæð. Þar er að finna háf, tvo ofna í vinnuhæð og rennihurð sem opnar út á stóra harðviðarverönd til suðurs sem er um 200 fermetrar að stærð og býður upp á frábæra aðstöðu til útiveru og samveru.

Á efri palli hússins er stór og björt stofa með mikilli lofthæð, parketi á gólfum, arni og innfelldri lýsingu í loftum. Fallegur horngluggi setur sérstakan svip á rýmið og veitir aukið ljós og útsýni. Úr stofu er útgengi á hornsvalir til norðurs og vesturs með glæsilegu útsýni yfir Fossvoginn og sjóinn. Þar er einnig stór hjónasvíta með parketi, góðum skápum og gólfhita. Yfirbyggðar svalir, um 16 fermetrar að stærð, tengjast rýminu og bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, svo sem aukaherbergi eða skrifstofu. Inn af hjónaherbergi er rúmgott flísalagt baðherbergi með sturtu og gert er ráð fyrir baðkari.

Neðri pallur hússins er vel skipulagður með tveimur rúmgóðum parketlögðum svefnherbergjum sjávarmegin, bæði með skápum og útgengi á pall úr öðru þeirra. Á milli herbergjanna er bjart hol með parketi og útgengi í garðinn. Baðherbergi á þessum palli hefur einnig nýlega verið endurnýjað og er flísalagt með sturtu, handklæðaofni og gólfhita. Þvottahúsið er stórt, flísalagt og vel búið með góðri innréttingu og hurð út í garð til vesturs.

Þetta er einstaklega vel skipulagt og fallegt heimili á einstökum stað sem sameinar gæði, útsýni og nálægð við náttúru og útivist á einstaklega heillandi hátt.

Eigendurnir vilja fá 259.000.000 fyrir húsið.

Sæbólsbraut1
Sæbólsbraut2
Sæbólsbraut3
Sæbólsbraut4
Sæbólsbraut5
Sæbólsbraut6
Sæbólsbraut7
Sæbólsbraut8
Sæbólsbraut9
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Vistaður í fangaklefa „í þágu almannafriðar og allsherjarreglu“
Innlent

Vistaður í fangaklefa „í þágu almannafriðar og allsherjarreglu“

Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir slys
Innlent

Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir slys

Að minnsta kosti 11 látnir í hörðum árekstri vörubíls og smárútu
Heimur

Að minnsta kosti 11 látnir í hörðum árekstri vörubíls og smárútu

Embla Bachmann tilnefnd til verðlauna
Menning

Embla Bachmann tilnefnd til verðlauna

35 ára karlmaður dæmdur fyrir að skemma bíl
Innlent

35 ára karlmaður dæmdur fyrir að skemma bíl

15 ára piltur játaði morð á 12 ára dreng í Birmingham
Heimur

15 ára piltur játaði morð á 12 ára dreng í Birmingham

Illugi lýsir augnabliki fegurðar í heita pottinum
Fólk

Illugi lýsir augnabliki fegurðar í heita pottinum

Stjörnulögmaður fær nýja vinnu
Fólk

Stjörnulögmaður fær nýja vinnu

Inga Sæland flaug á fyrsta farrými á EM
Pólitík

Inga Sæland flaug á fyrsta farrými á EM

Bubbi tekur forseta Alþingis og Viðreisn á beinið
Innlent

Bubbi tekur forseta Alþingis og Viðreisn á beinið

Jóhann hleypir aðdáendum á bakvið tjöldin
Myndband
Menning

Jóhann hleypir aðdáendum á bakvið tjöldin

Fólk

Illugi lýsir augnabliki fegurðar í heita pottinum
Fólk

Illugi lýsir augnabliki fegurðar í heita pottinum

„Þau hefðu haldið að ég væri einhver pervert.“
Selja einbýli með stórbrotnu útsýni
Myndir
Fólk

Selja einbýli með stórbrotnu útsýni

Stjörnulögmaður fær nýja vinnu
Fólk

Stjörnulögmaður fær nýja vinnu

Glæsilegt einbýlishús með sjávarútsýni á Seltjarnarnesi til sölu
Myndir
Fólk

Glæsilegt einbýlishús með sjávarútsýni á Seltjarnarnesi til sölu

Ragga nagli varar við „földum faraldri“
Fólk

Ragga nagli varar við „földum faraldri“

Loka auglýsingu