Einstakt einbýlishús við Hrísholt 10 í Garðabæ hefur verið sett á sölu á 231 milljón króna.
Um er að ræða vel skipulagða eign sem teiknuð var af Kjartani Sveinssyni og stendur á eftirsóttum stað með miklu útsýni og stórum suðurgarði.
Húsið er á tveimur hæðum og er samtals skráð 272,5 fermetrar að stærð, þar af er innbyggður tvöfaldur bílskúr 51,4 fermetrar. Eignin stendur ofan við götu og nýtur góðrar legu, með rúmgóðri lóð allt í kring sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Á neðri hæð hússins er forstofa og anddyri, hol með steyptum stiga, baðherbergi með gufu, þvottahús, geymsla og aðgengi að tvöföldum innbyggðum bílskúr. Efri hæðin skiptist í opið alrými með stofum og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og svalir með fallegu útsýni.
Staðsetning eignarinnar er talin afar hentug, en stutt er í gönguleiðir og þjónustu, þar á meðal verslunarmiðstöðina Smáralind og aðra fjölbreytta þjónustu í nágrenninu.
Húsið var byggt árið 1982 og er laust til afhendingar við kaupsamning.


Komment