
Skálholt
Mynd: Þjóðkirkjan
Vígslubiskupinn í Skálholti, sr. Kristján Björnsson, hefur látið af þjónustu sinn sem vígslubiskup en þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni.
Þar til nýr vígslubiskup verður kosinn munu vígslubiskupinn á Hólum og biskup Íslands annast hluta þjónustunnar. Þá munu vígðir þjónar og annað starfsfólk í Skálholti vinna áfram að verkefnum og viðburðum sem tengjast Skálholti í samráði við stjórn Skálholts, prófast Suðurprófastsdæmis o.fl.
Gert er ráð fyrir því að nýr vígslubiskup verði kosinn að loknu kirkjuþingi í haust þar sem yfirfara þarf starfsreglur um kosningu vígslubiskupa.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment