
Eftir að farið var að dreifa fullyrðingum á netinu um að körfuboltagoðsögnin Shaquille O´Neal hefði sent söngkonunni Sabrina Carpenter skilaboð fyrr í mánuðinum, hafnaði hann því alfarið að hann hefði reynt við hana.
„Fyrst af öllu, stelpur, þá hefur Diesel miklu betri „game“ en þetta,“ sagði Shaq í þætti sínum The Big Podcast þann 20. mars. „Ég er bara að segja það.“
Hinn 54 ára gamli tók sér þó tíma til að hlæja að meintum skilaboðum sem gengu á netinu og las þau upp.
„„Skrambinn elskan, ég myndi geyma prumpin þín í ilmvatnsflösku og spreyja þau á mig á hverjum degi“,“ sagði hann og vitnaði í falsaða texta. „„Bara grín, ég er Shaq. Hvað heitir þú, elskan?“ Og Sabrina svarar: „Ég veit hver þú ert. Þú ert alltof frægur til að senda svona skilaboð“.“
Í fölsuðu skilaboðunum hélt „Shaq“ síðan áfram með grófu orðalagi, en körfuboltastjarnan gerði ljóst að þetta væri allt tilbúningur.
Að lokum sagði hann að líklega væru það „ungir krakkar“ sem stæðu á bak við þetta, fólk sem væri upptekið af „algórítmanum og að slá í gegn á samfélagsmiðlum.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Shaq þarf að svara sögusögnum um ástarlíf sitt.
Í október vísaði hann til dæmis á bug orðrómi um að hann væri í sambandi við 21 árs OnlyFans-fyrirsætuna Sophie Rain eftir að þau sáust saman á skemmtistað í Las Vegas.
„Ég deita ekki svona ungar,“ skrifaði Shaq í athugasemdum við myndband sem fjallaði um aldursmun þeirra, „en ég skal deita mömmu þína og gefa þér bróður.“
Í annarri athugasemd, sem síðar var eytt, útskýrði hann að hann hefði verið að spila tónlist sem plötusnúður á Encore Beach Club þegar Sophie „kom í partýið mitt.“
Hann bætti við: „Hættið að reyna að búa til sögusagnir.“

Komment