Leikarinn Shia LaBeouf hefur verið sakaður um að valda truflunum í nágrenni við tennisfélag í New Orleans, samkvæmt tilkynningu sem send var til félagsmanna.
Í tilkynningu frá New Orleans Lawn Tennis Club kemur fram að „nýr nágranni“ hafi ítrekað valdið ólgu sem hafi haft áhrif á starfsemi og andrúmsloft félagsins. Heimildir fjölmiðla benda til þess að þar sé átt við LaBeouf, sem býr í nágrenni við klúbbinn.
Samkvæmt heimildum hefur leikarinn setið á verönd sinni og átt í samskiptum við félagsmenn sem eiga leið fram hjá. Lýsa vitni hegðun hans sem sveiflukenndri, þar sem hann hafi bæði boðið fólki peninga fyrir að spila tennis með sér og einnig truflað skipulagðar æfingar en LaBeouf er ekki skráður félagi í klúbbnum.
Í tilkynningunni eru félagsmenn hvattir til að forðast samskipti við viðkomandi nágranna og tilkynna stjórnendum um alvarleg atvik. Þá hefur aðgangur að hliði sem snýr að heimili hans verið takmarkaður á ákveðnum tímum til að draga úr mögulegum árekstrum.
Stjórnendur félagsins segjast jafnframt vinna með lögreglunni að því að leysa málið og tryggja áframhaldandi ró innan félagsins.
Lögreglumenn sáust ræða við LaBeouf við heimili hans í síðustu viku, en ekki hefur verið staðfest hvort það tengdist kvörtunum tennisfélagsins.
Forsvarsmenn tennisfélagsins neituðu að tjá sig frekar um málið þegar eftir því var leitað.


Komment