1
Pólitík

Ari Edwald braut lög

2
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

3
Fólk

Læknir og tónskáld selja á Akureyri

4
Fólk

„Þar var ég næstum því dauður“

5
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

6
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

7
Pólitík

Brynjar Níels ýtir undir samsæriskenningu

8
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

9
Innlent

Hélt persónuupplýsingum sínum leyndum

10
Innlent

Askja innkallar KIA-bíla

Til baka

Sólveig Anna krefst leiguþaks og refsinga við launaþjófnaði

„Er ekki frábær hugmynd að stoppa þá siðblindu hegðun sem viðgengst á leigumarkaði og stoppa þann viðvarandi og viðbjóðslega vanda sem launaþjófnaður er í lífi verkafólks höfuðborgarsvæðisins?“

Sólveig Anna Jónsdóttir 2
Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, kallar eftir tafarlausum aðgerðum stjórnvalda til að bæta stöðu verkafólks og láglaunahópa. Í Facebook-færslu segir hún að tvö skref séu sérstaklega brýn: að setja leiguþak og herða lög gegn launaþjófnaði.

Hún bendir á dæmi um leigjanda sem stendur frammi fyrir verulegri hækkun húsaleigu. „Mánaðarleiga mun því fara úr 324.00 krónum í 373.000 krónur,“ skrifar hún og segir slíkar hækkanir gera fólki nær ómögulegt að leggja fyrir eða stefna að eigin húsnæði.

Sólveig Anna segir stöðuna á leigumarkaði ósanngjarna og gagnrýnir það sem hún kallar arðrán. Hún telur nauðsynlegt að grípa inn í með lagasetningu og setja hemil á þróunina.

Þá leggur hún áherslu á að tekið verði á launaþjófnaði með skýrum refsiákvæðum. Hún segir kerfisbundin brot á réttindum verkafólks viðgangast án afleiðinga og vísar í ályktun Eflingarþings þar sem segir: „Hægt er að byggja kerfisbundnar vangreiðslur á launum inn í viðskiptamódel fyrirtækjanna með góðum árangri eins og dæmin sanna.“

Samkvæmt hennar upplýsingum nema launakröfur sem Efling hefur unnið að árin 2024 og 2025 nú þegar yfir 500 milljónum króna.

Hún bendir á að í Noregi hafi verið sett lög sem kveða á um allt að tveggja ára fangelsi fyrir launaþjófnað, og allt að sex ár í alvarlegum tilvikum. Slík lagasetning myndi, að hennar mati, „snarminnka allan þann ósóma og rugl sem viðgengst“.

Að lokum segir hún að þó umbætur á húsnæðislánakerfi séu jákvæðar, þá þurfi að grípa til aðgerða strax. Hún spyr hvort ekki sé tímabært að stöðva „þann viðvarandi og viðbjóðslega vanda sem launaþjófnaður er í lífi verkafólks“.

„Ég get vel tekið undir með ráðherra félagsmála að betra húsnæðislánakerfi sé mjög gott mál. En þangað til að það verður innleitt, eftir mörg ár, er þá ekki frábær hugmynd að stoppa þá siðblindu hegðun sem viðgengst á leigumarkaði og stoppa þann viðvarandi og viðbjóðslega vanda sem launaþjófnaður er í lífi verkafólks höfuðborgarsvæðisins? Þá geta þau sem þurfa að þola þetta fáránlega rugl mögulega byrjað að leggja fyrir svo að þau eigi þá séns þegar nýja kerfið kemur á því að kaupa sér eigin íbúð.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti
Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki
Myndir
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans
Innlent

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

Maður grunaður um að myrða tvíbura
Heimur

Maður grunaður um að myrða tvíbura

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð
Innlent

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð

20 skólaþróunarverkefni styrkt
Innlent

20 skólaþróunarverkefni styrkt

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum
Myndir
Fólk

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum

Ökumenn, áfengi og fíkniefni
Innlent

Ökumenn, áfengi og fíkniefni

Peningar

Húrra skellir í lás
Peningar

Húrra skellir í lás

Hefur verið ein þekktasta fataverslun landsins í meira en áratug
Verð á mat og drykk hækkar meira en búist var við
Peningar

Verð á mat og drykk hækkar meira en búist var við

Hafdís Björg stofnar fyrirtæki
Peningar

Hafdís Björg stofnar fyrirtæki

Tæplega 40 þúsund mótmæla kílómetragjaldi
Peningar

Tæplega 40 þúsund mótmæla kílómetragjaldi

„Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þetta“
Peningar

„Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þetta“

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga
Peningar

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga

Loka auglýsingu