
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar, gagnrýnir námslánakerfið í nýrri færslu á Facebook og segir stöðu sína dæmi um óeðlilegt fyrirkomulag sem sé krónunni um að kenna.
Í færslunni rifjar hún upp að hún hafi getað menntað sig þökk sé námslánum, en hún hóf nám í Leiklistarskóla Íslands árið 1994, sem móðir ungrar stúlku og síðar í lagadeild árið 2005, sem fjögurra barna móðir.
„Ég var svo heppin að eiga þess kost að mennta mig, þökk sé námslánakerfinu,“ skrifar Helga Vala og bætir við að hún hafi unnið með námi en hefði ekki getað lokið því án lánanna.
Hún segir námslánakerfið mikilvægt jöfnunartæki en bendir á að skuldirnar hafi þróast með óvenjulegum hætti.
„Í heildina fékk ég lánaðar heilar 11 milljónir. Ég er búin að borga rúmlega 6 tilbaka. Í dag skulda ég rúmlega 20 milljónir í námslán.“
Helga Vala segir þessa þróun meðal annars endurspegla kostnað við að halda í íslensku krónuna og gagnrýnir kerfið harðlega:
„Þetta er meðal annars fórnarkostnaðurinn við að halda í íslensku smákrónuna. Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þetta.“

Komment