
Bill Gates, stofnandi Microsoft, mun bera vitni fyrir bandaríska þinginu í júní um samskipti sín við dæmdan kynferðisbrotamann, Jeffrey Epstein, að því er þingmenn hafa staðfest.
Gates er nýjasti áhrifamikli einstaklingurinn sem samþykkir að mæta fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildarinnar, sem rannsakar mál tengd Epstein.
Talsmaður Gates sagði í samtali við BBC að hann „hlakki til að svara öllum spurningum nefndarinnar til að styðja við mikilvægt starf hennar“. Yfirheyrslan er áætluð 10. júní.
Gates hefur ekki verið sakaður um misferli af hálfu fórnarlamba Epstein og það að nafn hans komi fram í rannsóknargögnum felur ekki í sér að hann hafi gerst sekur um refsiverða háttsemi.
Upplýsingar um samskipti Gates og tengsl hans við Epstein komu fram í meira en þremur milljónum skjala sem dómsmálaráðuneytið birti fyrr á þessu ári. Þó hafa enn milljónir skjala ekki verið gerðar opinberar.
Í nóvember síðastliðnum undirritaði Donald Trump lög sem þingið samþykkti, sem kveða á um að dómsmálaráðuneytið birti öll gögn úr rannsóknum sínum á Epstein. Þannig urðu upplýsingar um tengsl Gates opinberar.
Gates fjallaði um tengsl sín við Epstein á fundi með starfsfólki góðgerðarsjóðs síns og „tók ábyrgð á gjörðum sínum“.
Gates hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá þáverandi eiginkonu sinni með tveimur rússneskum konum en upphaflega hafði hann sagt drög að tölvupósti í Epstein-skjölunum fölsuð. Þar hélt Jeffrey Epstein því fram að Gates hefði stundað kynlíf með rússneskum konum og smitast af kynsjúkdómi en tölvupósturinn var aldrei sendur. Þó nokkrar ljósmyndir af Bill Gates má finna í þeim Epstein-skjölum sem birt hafa verið sem og fjölmargir tölvupóstar tengdir milljarðamæringnum.

Komment