
Lögfræðineminn og fyrirsætan Tinna Rún Jónasdóttir er, eins og margir aðrir, mikið jólabarn og ákvað Mannlíf að heyra í fyrirsætunni til að forvitnast hvaða jólalög væru í uppáhaldi.
Tinna Rún nefndi fimm lög sérstaklega í því samhengi.
1 - Wham - Last Christmas
„Lag sem að maður tengir alltaf fyrst við jólin! Bæði fallegt og grípandi en fjallar einnig um ástarsorg sem flestir hafa gengið í gegnum. Set það fyrst á listann því það er einfaldlega besta lagið!“ segir lögfræðineminn um Last Christmas.
2. Björgvin Halldórsson - Svona eru jólin
„Lagið tekur mig aftur í tímann, líður eins og ég sé 10 ára að bíða eftir því að opna gjafirnar. Mjög nostalgic lag og fæ í raun bara heimþrá ef ég hlusta ekki á það heima hjá mér.“
3. Laddi - Snjókorn falla
„Grípandi lag sem kemur manni alltaf í stuð! Man ekki hversu oft ég spilaði þetta lag á klarinettið þegar nær dró að jólunum. Enn og aftur líður mér eins ég sé komin aftur í grunnskóla í snjóboltastríð.“
4. Sigurður Guðmundsson - Það snjóar
„Flest uppáhalds jólalögin mjög róleg og viðlagið er sérstaklega grípandi. Ég tengi þetta lag við hlýju og smákökubakstur. Held að lögin vaki upp mjög þæginlegar tilfinningar sem gera lögin sérstaklega einstök,“ segir fyrirsætan um Það snjóar.
5. Sultan - JÓLADJAMM
„Þrátt fyrir öll kozy lögin þá er ég sjálf algjör djammari og þótt að það sé stress í kringum jólin er mikilvægt að hafa gaman! Þetta lag er bæði skemmtilegt og kemur manni í jólagírinn!“ sagði Tinna að lokum.

Komment