
Ung kona liggur á batavegi eftir hrottalega árás á heimili sínu í São Gonçalo í febrúar síðastliðnum. Árásarmaðurinn, sem hafði áður reynt að ná athygli hennar með gjöfum, braust inn á heimili hennar og stakk hana um það bil 50 sinnum með hnífi.
Fórnarlambið, Alana Anisio Rosa, 20 ára, hafði áður hafnað viðreynslu manns sem hún þekkti úr líkamsræktarstöð. Samkvæmt fjölskyldu hennar lét hann ekki þar við sitja og hélt áfram að senda henni blóm og súkkulaði.
Jaderluce Anisio de Oliveira kom að dóttur sinni alblóðugri þegar hún sneri fyrr heim en áætlað var. „Hann hélt bara áfram að stinga hana aftur og aftur,“ sagði hún í samtali við fjölmiðla. Hún náði að stöðva árásina og draga manninn frá dóttur sinni.
Eftir að hafa verið haldið í dái og gengist undir fjölda skurðaðgerða er Rosa nú á batavegi.
Málið hefur vakið mikla athygli í Brasilíu, ekki síst í ljósi þess að svokallað „Red Pill“-efni hefur notið aukinna vinsælda á samfélagsmiðlum. Myndbönd sem sýna menn æfa sig í ofbeldi gegn konum, meðal annars með því að berja og stinga brúður, hafa farið víða á netinu.
Sérfræðingar vara við því að slíkt efni geti haft áhrif á hegðun og viðhorf, sérstaklega í landi þar sem ofbeldi gegn konum er þegar útbreitt vandamál.
Daniel Cara prófessor segir að þessi hugmyndafræði geti „réttlætt og hvatt til“ ofbeldis gegn konum.
Málið tengist einnig öðrum nýlegum atvikum í Brasilíu þar sem gerendur hafa vísað til svipaðrar hugmyndafræði, þar á meðal kynferðisofbeldi og heimilisofbeldi.
Yfirvöld rannsaka málið áfram, á sama tíma og umræða um áhrif samfélagsmiðla og netmenningar á ofbeldi fer vaxandi.
Komment