1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

4
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

5
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

6
Minning

Hörður Torfa kveður Megas

7
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

8
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

9
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

10
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Til baka

„Að sjá bandaríska fánann flökta í grámyglunni í dag fyllir mann stingandi óþægindum“

Auður Jónsdóttir gagnrýnir meðvirkni hins vestræna heims

Bandaríski fáninn
Bandaríski fáninn við sendiráðiðAuður rýnir í ástand heimsins í nýrri færslu
Mynd: Facebook

Rithöfundurinn og blaðakonan Auður Jónsdóttir gagnrýnir harðlega stefnu Bandaríkjanna og viðbrögð vestrænna ríkja við átökum í Mið-Austurlöndum í nýrri færslu á samfélagsmiðlum.

Í færslunni lýsir hún djúpum ótta og vanlíðan vegna stöðu heimsmála og segir meðal annars að táknmyndir Bandaríkjanna veki nú önnur viðbrögð en áður:

„Að sjá bandaríska fánann flökta í grámyglunni í dag fyllir mann stingandi óþægindum. Í dag er þessi fáni tákn vanmáttar heimsins gagnvart sturlun þeirri sem ræður Bandaríkjunum - sem nú eru orðin endanlega uppspretta algjörs stjórnleysis um leið og þau hafa misst stjórn á innrásinni í Íran, eins og spáð hafði verið, þessari myrku herferð með harðkjarna Ísrael, afli sem leitast við að drepa börn annarra þjóða. Bara eyða.“

Auður vísar jafnframt til orða Donald Trump og segir þau vekja upp sterk söguleg hughrif:

„Að sjá og heyra orð Trumps: „Heil siðmenning deyr í kvöld" er svo óhugnarlegt að Hitler er það næsta sem býr í hughrifum manns, manneskju sem í æsku var innrætt í viðhorfi umhverfisins að helförin ætti aldrei að fá að endurtaka sig. En Trump og hans fylgisfólk er nú þegar búið að eyða siðmenningu, þeirri siðmenningu sem manni var innrætt að ríkti eins konar lágmarks skilningur um í frjálslyndum lýðræðisríkjum. Nokkuð sem reyndist vera bull.“

Í færslunni dregur hún einnig upp víðari mynd af þróuninni og segir hana hafa rætur að rekja lengra aftur í tímann:

„Og raunar má segja að sú skrumskælda atburðarás hafi hafist með innrásinni í Írak.“

Hún telur að ábyrgðin liggi ekki einungis hjá stjórnmálamönnum heldur einnig hjá almenningi og alþjóðasamfélaginu í heild:

„Til eru fleyg orð Önnu Frank eitthvað á þá leið að það séu ekki bara stjórnmálamennirnir og búrgeisarnir sem séu sekir, til þess að þeir geti framið sín voðaverk þurfi stuðning venjulega fólksins. Og það erum við að horfa upp á í dag. Meðvirkni þeirra sem stoppa ekki Trump.“

Bætir hún við að stjórnmálafólk í Bandaríkjunum og annarra landa sé full af meðvirkninni líka, sem og almenningur á Vesturlöndum.

„Öðruvísi væri þessi maður ekki við völd.“

Auður gagnrýnir að lokum það sem hún kallar skort á mannúð og tvöfalt siðferði í garð fólks í Mið-Austurlöndum:

„Nema að því að menning hins vestræna heims er meðvirkni, ráðvilla, blind einstaklingshyggja og skortur á tilfinningu fyrir að gildi mannúðar, mannvirðingar og mannréttinda megi sín einhvers. Og sú sjónvilla að telja að manneskjur í Mið-Austurlöndum, að frátöldu Ísrael, sé á einhvern hátt öðruvísi en við. Að barn í Íran, Líbanon eða Palestínu sé minna virði en börnin okkar. .“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu