1
Innlent

Íris „eltihrellir“ handtekin

2
Innlent

Fékk nálgunarbann á kærasta og lýsir rauðu flöggunum

3
Fólk

Jakob fær rúmar fimm milljónir

4
Fólk

Eitt dýrasta hús Íslands lækkað talsvert í verði

5
Minning

Jón Hólmgeirsson er látinn

6
Innlent

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega

7
Innlent

Ákærður fyrir að nýta sér veikindi fyrrum tengdaföður

8
Heimur

Ungabarn lést í skelfilegri hundaárás

9
Heimur

DNA leiddi til handtöku í 21 árs gömlu morðmáli

10
Landið

Haraldur hættur

Til baka

„Utanríkisráðherra er ekki einhver áhrifavaldur að selja orkudrykki“

Viðbrögð Þorgerðar Katrínar við árás Bandaríkjanna þykja sumum furðuleg

Alþingi óundirbúnar fyrirspurnir - Viktor Pétur Finnson - Þorgerður Katrín
Utanríkisráðherra í góðum félagsskapMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Mikil umræða hefur skapast í alþjóðasamfélaginu eftir að Bandaríkin réðust á Venesúela í gær og handtóku Nicolás Maduro, forseta landsins, og færðu úr landi. Telja margir aðgerðir Bandaríkjanna vera skýrt brot á alþjóðalögum.

Í viðtali við Vísi talaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í kringum spurningar blaðamanns en var glöð að Maduro væri farinn frá völdum.

„Það sjá allir að hann er og hefur verið einræðisherra og hann er að brjóta á borgaralegum réttindum og við Íslendingar höfum gagnrýnt framferði Maduros, meðal annars í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna,“ sagði hún við Vísi.

„Og þetta var greinilega mjög vel heppnuð framkvæmd. Það er ekki hægt að segja annað. Þetta var greinilega mjög vel æft, þaulhugsað hjá Bandaríkjamönnum. En það skiptir máli að virða alþjóðalög, að farið sé að alþjóðarrétti, en líka að við sjáum fram á að það verði núna ferli lýðræðis, mannréttinda og gegnsæis í stjórnarfari Venesúela. Maður vonar að við munum sjá fram á lýðræðislegar umbreytingar.“

Alþjóðalög eru smámál

Einn af þeim sem hafa tjáð sig um viðbrögð Þorgerðar Katrínar er Atli Þór Fanndal, fyrrverandi blaðamaður.

„Ég eiginlega skil ekki viðbrögð utanríkisráðherra við fréttum frá Venesúela,“ skrifar Atli á samfélagmiðla. „Í fyrsta lagi þá sendi Ísland mikinn fjölda fólks úr landi til þessa einræðisherra. Framkoma sem er einfaldlega botnlaus grimmd. Þannig að það er svolítið spánskt að tala núna eins og innrás sé bara smámál eftir að hafa stundað það að afhenda þessum stjórnvöldum fólk. Stjórnvöldum sem eru hræðileg að það er varla til umhugsunar hvort svona aðferðir eigi við. Maduro er engin vorkun en það er nú ef til vill ekki alveg fullorðins af utanríkisráðherra smáríkis að tala eins og virðing við alþjóðalög sé kannski svolítið smámál. Ísland á um það bil allt undir því að reglur séu virtar. Utanríkisráðherra er ekki einhver áhrifavaldur að selja orkudrykki,“ segir Atli og tekur fram að ummæli hennar séu stefnumótandi.

„Hún er persónugerð ráðuneytis sem fer með utanríkisstefnu Íslands. Fyrir þjóð sem telur sig friðelskandi af slíkri afneitun og meðvirkni að það stappar í trylling er eðlilegt að ætlast til þess að utanríkisráðherra tali skýrt og fyrir stillingu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Reyndi að flýja land með illa fengið fé
Innlent

Reyndi að flýja land með illa fengið fé

Var með þrjá mismunandi gjaldmiðla á sér
Sævar Þór ógnaði lögreglumanni með hnífi
Innlent

Sævar Þór ógnaði lögreglumanni með hnífi

Tannlæknir selur stóra íbúð í Mosó
Myndir
Fólk

Tannlæknir selur stóra íbúð í Mosó

Elva Dagmar Simundsson er fallin frá
Minning

Elva Dagmar Simundsson er fallin frá

Rannsaka líkamsárás á skemmtistað
Innlent

Rannsaka líkamsárás á skemmtistað

Fékk nálgunarbann á kærasta og lýsir rauðu flöggunum
Viðtal
Innlent

Fékk nálgunarbann á kærasta og lýsir rauðu flöggunum

Svíi sagður hafa neytt eiginkonu sína til að stunda vændi
Heimur

Svíi sagður hafa neytt eiginkonu sína til að stunda vændi

Varnarmálaráðherra Pakistan: „Ísrael er bölvun fyrir mannkynið“
Heimur

Varnarmálaráðherra Pakistan: „Ísrael er bölvun fyrir mannkynið“

Jakob fær rúmar fimm milljónir
Fólk

Jakob fær rúmar fimm milljónir

DNA leiddi til handtöku í 21 árs gömlu morðmáli
Heimur

DNA leiddi til handtöku í 21 árs gömlu morðmáli

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega
Innlent

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega

Innlent

Reyndi að flýja land með illa fengið fé
Innlent

Reyndi að flýja land með illa fengið fé

Var með þrjá mismunandi gjaldmiðla á sér
Ákærður fyrir að nýta sér veikindi fyrrum tengdaföður
Innlent

Ákærður fyrir að nýta sér veikindi fyrrum tengdaföður

Sævar Þór ógnaði lögreglumanni með hnífi
Innlent

Sævar Þór ógnaði lögreglumanni með hnífi

Rannsaka líkamsárás á skemmtistað
Innlent

Rannsaka líkamsárás á skemmtistað

Fékk nálgunarbann á kærasta og lýsir rauðu flöggunum
Viðtal
Innlent

Fékk nálgunarbann á kærasta og lýsir rauðu flöggunum

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega
Innlent

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega

Loka auglýsingu