
Dayton Webber, útlimalaus maður í Bandaríkjunum, er nú í haldi yfirvalda í Virginíuríki þar sem hann bíður framsals til Maryland-ríkis vegna ákæru um manndráp.
Webber, sem er 27 ára, er vistaður í Albemarle-Charlottesville fangelsinu þar sem hann nýtur sérstakrar umönnunar vegna líkamlegs ástands síns. Samkvæmt forðstöðumanni fangelsisins er fangelsið fullbúið til að sinna læknisþörfum hans og hefur hann hingað til verið til fyrirmyndar.
Webber er vistaður í klefa á sjúkradeild fangelsisins, þar sem hann er undir stöðugu eftirliti bæði starfsmanna og öryggismyndavéla. Fangaverðir kanna líðan hans að minnsta kosti tvisvar á klukkustund. Honum stendur til boða dagleg sturta, klukkustundar útivist eða samvera með öðrum föngum, auk þess sem hann hefur aðgang að spjaldtölvu til samskipta, afþreyingar og lagalegrar ráðgjafar.
Að sögn yfirvalda kaus Webber sjálfur að nota ekki gervilimi sína undanfarna mánuði og hefur ekki óskað eftir þeim meðan hann er í haldi.
Málið snýr að skotárás sem átti sér stað í La Plata í Maryland, þar sem Bradrick Michael Wells lést af skotsárum. Samkvæmt lögreglu átti Webber að hafa verið ökumaður bifreiðar þar sem Wells sat í framsæti þegar upp kom ágreiningur milli þeirra. Í kjölfarið er Webber sakaður um að hafa skotið Wells til bana fyrir framan vitni sem sátu í aftursæti.
Eftir atvikið á Webber að hafa reynt að fá farþegana til að hjálpa sér að fjarlægja líkið úr bifreiðinni, en þeir neituðu og yfirgáfu vettvang. Hann er sagður hafa ekið á brott með líkið, sem síðar fannst í bakgarði í nágrenninu.
Webber var í kjölfarið handtekinn fyrir manndráp auk annarra alvarlegra brota. Ekki liggur fyrir hvenær framsal hans til Maryland mun fara fram, en búist er við að aðstæður hans í haldi breytist við flutninginn.

Komment