1
Fólk

Verðlaunahús í Kópavogi til sölu

2
Pólitík

Segir formann Sjálfstæðisflokksins „ösla um í drullupolli mannhaturs“

3
Heimur

Átján ára piltur skotinn til bana í strætó

4
Heimur

Dularfull hreyfing hvetur til mótmæla í Rússlandi

5
Innlent

Aðskotahlutur í hafragraut

6
Innlent

Gugga í gúmmíbát setur öryggið á oddinn

7
Heimur

Spænsk kona þiggur dánaraðstoð

8
Fólk

Ingunn valin frekar en Ásta eða Þórir

9
Heimur

Hegseth varar Breta við árás á Lundúnir

10
Innlent

Björn gagnrýnir „sundrungu“ meðal blaðamanna

Til baka

Verðlag hækkar í Bónus um 1,8% frá desember

Verð enn lægst í Prís

Bónus
BónusVerðlag fer hækkandi í öllum verslunum.
Mynd: Ljósmynd: Bonus.is

Verðlag í Bónus hækkar um 1,8% frá desember

Verðlag á dagvöru hækkaði um 0,7% í febrúar frá fyrri mánuði samkvæmt dagvöruvísitölu ASÍ. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ASÍ en vísitalan skoðar þróun á vegnu meðalverði á dagvöru í öllum verslunum.

Fram kemur að sé Nettó undanskilið mælist aðeins meiri hækkun á vísitölunni eða um 0,8%, en í Nettó voru afsláttardagar í byrjun síðasta mánaðar. Mest hækkaði verðlagið í Iceland af öllum verslunum, en þar tók verðlagið stökk upp á við í febrúar og hækkaði um 10% frá fyrri mánuði.

Ef litið er sérstaklega til lágvöruverslana hefur verðlag hækkað um 1-2% frá desember, og má vænta að áramótahækkanir séu komnar fram að mestu. Verðlag í Krónunni hefur hækkað um 1,1%, í Nettó um 1,5%, í Prís um 1,6% og í Bónus um 1,8% frá desember. Þetta er stór hluti af árshækkun verslananna fjögurra, frá því kjarasamningar voru undirritaðir í mars í fyrra.

Verð enn lægst í Prís


Samkvæmt ASÍ hefur ekki orðið breyting á röðun verslana. Prís er áfram ódýrasta verslunin í reglulegu eftirliti Verðlagseftirlitsins og hefur verið það frá opnun. Að meðaltali hafa vörur í Bónus verið 4-5% dýrari en í Prís sérhvern mánuð frá opnun verslunarinnar. Þá eru verð í Krónunni nú 7% hærri en í Prís og í Nettó eru þau 13% hærri.

Súkkulaði, svínakjöt og fuglakjöt hækkar í verði

Séu vöruflokkar skoðaðir sérstaklega hækkaði verð á svínakjöti og fuglakjöti um 3% í bæði Bónus og Krónunni milli janúar og febrúar. Til að mynda hækkaði Ódýrt kjúklingalæri án mjaðmabeins í Krónunni úr 1.477kr/kg í 1.599kr/kg (8,3%). Ali kjúklingastrimlar hækkuðu í Bónus úr 1.087kr í 1.147kr (5,5%) og í Prís úr 989kr í 1.079kr (9,4%).

Þó hækkaði súkkulaði mest allra flokka, eða um það bil 4,5% í Bæði Bónus og Krónunni.

Miðað við fyrstu mælingar í mars hefur dagvöruvísitala verðlagseftirlitsins hækkað um rúmlega 0,4% frá febrúar, en um 0,3% sé Nettó undanskilð.  Vöruflokkurinn súkkulaði leiðir hækkanir enn og aftur í bæði Bónus og Krónunni, bæði í febrúar og mars.

Þá hækkar fiskur aukreitis nokkuð í Bónus, eða um 2,7%, en aðeins um 0,24% í Krónunni. Til dæmis hækka bleikjuflök úr landeldi um tæp 6% í Bónus.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga
Peningar

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga

„Alfa Framtak mun geta byggt á þessum sterka grunni og stutt við næsta vaxtarskeið félagsins.“
Dæmd fyrir ótrúlegt magn af kannabislaufum
Innlent

Dæmd fyrir ótrúlegt magn af kannabislaufum

Hegseth varar Breta við árás á Lundúnir
Heimur

Hegseth varar Breta við árás á Lundúnir

Ingunn valin frekar en Ásta eða Þórir
Fólk

Ingunn valin frekar en Ásta eða Þórir

Átján ára piltur skotinn til bana í strætó
Heimur

Átján ára piltur skotinn til bana í strætó

Björn gagnrýnir „sundrungu“ meðal blaðamanna
Innlent

Björn gagnrýnir „sundrungu“ meðal blaðamanna

Spænsk kona þiggur dánaraðstoð
Heimur

Spænsk kona þiggur dánaraðstoð

Fyrrum ráðherra Finnlands dæmdur fyrir hatursorðræðu
Heimur

Fyrrum ráðherra Finnlands dæmdur fyrir hatursorðræðu

Dularfull hreyfing hvetur til mótmæla í Rússlandi
Heimur

Dularfull hreyfing hvetur til mótmæla í Rússlandi

Tveir slösuðust í snjóflóði í Svíþjóð
Heimur

Tveir slösuðust í snjóflóði í Svíþjóð

Verð á mat og drykk hækkar meira en búist var við
Peningar

Verð á mat og drykk hækkar meira en búist var við

Peningar

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga
Peningar

Nói Siríus aftur í eigu Íslendinga

„Alfa Framtak mun geta byggt á þessum sterka grunni og stutt við næsta vaxtarskeið félagsins.“
Patrekur Jaime stofnar fyrirtæki
Peningar

Patrekur Jaime stofnar fyrirtæki

Verð á mat og drykk hækkar meira en búist var við
Peningar

Verð á mat og drykk hækkar meira en búist var við

Sólveig Anna krefst leiguþaks og refsinga við launaþjófnaði
Peningar

Sólveig Anna krefst leiguþaks og refsinga við launaþjófnaði

Matvöruverð heldur áfram að hækka
Peningar

Matvöruverð heldur áfram að hækka

„Nablinn“ hefur fyrirtækjarekstur
Peningar

„Nablinn“ hefur fyrirtækjarekstur

Loka auglýsingu