Nú styttist óðum í áramótin og ákvað Mannlíf að heyra í nokkrum frábærum einstaklingum um uppáhaldsáramót þeirra, hvort viðkomandi ætli að strengja áramótaheit og margt fleira
Rapparinn Daníel Alvin Haraldsson opnar sig um sín áramót í gegnum árin.
Hver eru þín eftirminnilegustu áramót?
Fyrstu jól og áramót hjá yngri syni mínum, vorum öll fjöllan í risa einbýlishúsi með tengdó og bræðrum Birtu. Horfðum á flugelda á þaksvölunum. Það var algjör veisla. þetta hefur verið í lok 2024.
Lumar þú á góðri áramótasögu?
Sko, ætla ekki að koma með djammsögu því áramóta djömm er ofmetinn, of hyped og yfirleitt enda ekki vel, en oft erum við hjá tengdó um áramótin og fólk í hverfinu fer alltaf uppá Vatnshól til að horfa á flugelda veisluna sem á sér stað yfirleitt um miðnætti. Vatnshóll er hóll í hverfinu, mjög brattur hóll, og þetta árið var fljúgandi hálka og hóllinn einsog svell, að sjá fólkið reyna labba upp og niður var hilarious.. menn voru að fljúga á hausinn bæði á leiðinni upp og niður, við grenjuðum úr hlátri allt kvöldið yfir þessu.
Ætlar þú að strengja áramótaheit?
Gefa út meiri tónlist og hætta taka í vörina.
Hefur þú gert það áður?
Í fyrra var ég með áramótaheiti að gefa út plötu! Gekk helviti vel ef þú spyrð mig.
Hvað ætlar þú að gera um næstu áramót?
Bara njóta í faðmi fjölskyldunnar.


Komment