HeimurBritney lamin – Öryggisvörðurinn ekki kærður Í ljós er komið að öryggisvörðurinn sem sló Britney Spears í andlitið í Las Vegas á miðvikudag þegar hún vildi fá mynd af sér með körfuboltamanninum Victor Wembanyama verður ekki kærður. TMZ greinir frá því að lögreglan í Las Vegas hefur lokið rannsókn sinni á ásökununum og komist að þeirra niðurstöðu að enginn verði kærður í málinu. Forsaga málsins er...
HeimurHlýtur Twitter sömu örlög og MySpace? Twitter hefur hótað samfélagsrisanum Meta lögsókn eftir að Meta setti örbloggsappið „Threads“ á markað. Threads er á margan hátt líkt Twitter en Twitter telur að Meta hafi ráðið til sín fyrrum starfsmenn sína og nýtt þá til að flýta þróun á nýja forritinu en Meta hafna því. Lögfræðingur á vegum Twitter, Alex Spiro, sendi forstjóra Meta, Mark Zuckerberg, bréf með...
HeimurÝmislegt áhugavert fannst í villu Prigozhin – Peningabúnt, sleggja og laglegt hárkollusafn Nýjar ljósmyndir hafa verið birtar frá heimili Yevgeny Prigozhin, foringja Wagner-málaliðahópsins alræmda. Ekki er almennilega vitað um nákvæma staðsetningu Yevgeny Prigozhin en forseti Belarús, Alexander Lukasjenka sagði í dag að hann væri kominn til Rússlands. Ekki hefur það fengist staðfest en rússnesk yfirvöld segja rannsókn á máli hans enn í fullum gangi. Eins og frægt er orðið stóð Prigozhin fyrir...
HeimurBen & Jerry‘s: Skiliði Ameríku Ísframleiðandinn Ben & Jerry‘s reitti ansi marga til reiði á þjóðhátíðardegi bandaríkjanna með því að birta tíst þess efnis að þjóðin hefði verið byggð á stolnu landi frá innfæddum og leggur til að 4. júlí verði nýttur í að skuldbinda sig við að skila landinu. 33 þúsund athugasemdir hafa verið skrifaðar við tístið þegar þetta er ritað, fjölmargir bersýnilega bálreiðir...
HeimurSigur Repúblikana – Samfélagsmiðlar máttu birta villandi upplýsingar um Covid-19 Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að þrýstingur ríkisstjórnar Joe Biden á samfélagsmiðlafyrirtæki um að ritskoða efni sem tengdist aðgerðum stjórnvalda gegn Covid-19 og kosningum þar í landi stangist á við stjórnarskrá Bandaríkjanna. Málið er umdeilt því það er talið vera leiðarvísir fyrir hlutverk þegar kemur að því að stjórna efni á samfélagsmiðlum. Úrskurðurinn þykir ákveðinn sigur fyrir Repúblikana sem hafa...
HeimurHákarl veitti fólki óvæntan félagsskap á strönd: sjáðu myndbandið! „Komdu þér upp úr vatninu!“ heyrist í myndbandi af hákarli hringsólandi við strönd eina í Flórída. Svo virtist sem hann væri að eltast við fisk. Strandgestum í Navarre, Flórída var heldur betur brugðið þegar hákarl birtist skyndilega og synti meðal þeirra. Svo virtist sem hákarlinn væri að eltast við fisk. Myndskeið náðist af atburðinum en ABC News birti það. Sjáðu...
HeimurKókaín í Hvíta húsinu Hvít duft fannst í vinnurými í Hvíta húsinu. Mjög líklega er um að ræða kókaín. Efnið fannst við reglubundið eftirlit. Joe Biden forseti var ekki á svæðinu þegar efnið fannst. Leyniþjónustan neitar því að efnið hafi fundist í vistarverum hans. Ekki er vitað nákvæmlega hvar efnið fannst en svo virðist sem viðbragðsaðilar í Washington DC, nánar tiltekið slökkviliðið sem gerði...
HeimurBýður hinu ómögulega birginn: Trommar ótrúlegustu lög með einni hendi Trommarinn og YouTube stjarnan El Estepario Siberiano gerir sér það að leik í nokkrum myndböndum sínum að spila tæknilega flókin lög á trommur en bara með einni hendi. Á meðan hann trommar lögin notar hann hina hendina t.d. í að reykja, drekka eða horfa ástleitnum augum á púða. Þegar myndböndin dúkkuðu fyrst upp munu gárungar hafa gert því skóna að...
HeimurKína slær Bandaríkin utanundir: Takmarkanir munu auka á spennu Kína hyggst takmarka útflutning á tveimur málmtegundum sem notaðar eru í hátækniiðnaði og hergagnaframleiðslu frá 1. ágúst. Viðstkiptaráðherra Kína segir að gjörningurinn sé til að tryggja þjóðaröryggi en rýnar telja þetta andsvar Kína við tilraunum Bandaríkjamanna til að hamla tækniþróun þar í landi. Málmarnir sem um ræðir eru galíum og germaníum en þeir eru m.a. notaðir í hálfleiðara. Þó útflutningstakmörkunum...
HeimurVörpuðu upplýsingum um Assange á kennileiti Lundúna: „Ofsóttur fyrir að stunda blaðamennsku“ Julian Assange átti 52 ára afmæli í gær og í tilefni þess birtu stuðningmenn hans upplýsingar um mál hans á helstu kennileiti Lundúnarborgar. Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks og vinur Julian Assange, blaðamanns og fyrrum ritsjóra Wikileaks, skrifaði færslu í gær á Facebook. Tilefnið var 52 ára afmæli Assange sem hefur verið í haldi Belmash-fangelsinu í Bretlandi í fimm ár, fyrir...
HeimurJordan segist ósáttur: Sonurinn á í ástarsambandi við fyrrverandi konu Pippen Körfuboltastjarnan Michael Jordan er ekki sáttur við samband sonar síns við fyrrverandi eiginkonu fyrrum liðsfélaga hans, Scottie Pippen. Jordan var spurður út í sambandið þegar hann var að yfirgefa veitingastað í París á sunnudag. Í fyrstu hristi hann bara höfuðið og hló en sagði svo að lokum þvert nei. Þetta kemur fram á TMZ. Larsa Pippen og Marcus Jordan hafa...
HeimurFlugbíllinn verður að veruleika 2025 Bandaríska fyrirtækið Alef hyggst framleiða rafknúinn flugbíl sem fyrirhugað er að verði kominn í almenna sölu árið 2025. Fjölmörg fyrirtæki víða um heim eru að þróa rafknúin farartæki sem geta flogið en Alef sker sig úr að því leytinu til að farartækið sem um ræðir getur bæði ekið um eins og hefðbundinn bíll en líka tekið á loft. CNN segir...